19.9.2007 | 15:20
Blokkflautur
Systur læra á blokkflautu í skólanum. Í síðustu viku komu þær heim með blokkflauturnar sínar á miðvikudegi og máttu hafa þær heima til að æfa sig fram yfir helgina. Gleði mín var fölskvalaus, enda vita allir að tónar blokkflautunnar eru ægifagrir. Sumir mundu jafnvel segja að þeir gæfu lífinu gildi. Tónlist gefur alla vega lífinu gildi, að því er gömul lygi hermir.
Systur áttu að æfa eftir nótum og þá kom babb í bátinn. Fyrsta lagið var að vísu afar einfalt. Það var spilað við þekkta ferskeytlu. Við fyrstu línu vísunnar spiluðu þær systur "rauða nótu" átta sinnum. Önnur lína var alveg eins: "Rauða nótan" átta sinnum. Og þriðja línan var svoleiðis líka, sem og fjórða línan. Alls 32 "rauðar nótur."
Systur vissu hvernig átti að spila "rauða nótu" sem var nú meira en ég vissi, enda hef ég aldrei lært á þetta eðalhljóðfæri, blokkflautuna. "Rauða nótan" kemur sem sagt þegar haldið er fyrir efsta gat neðan á flautunni og efsta gat ofan á flautunni. Hver sem er getur klemmt fingur utan um blokkflautu og kallað fram rauða nótu og lífsfyllingu um leið.
Svo versnaði í því. Þær höfðu merkt sérstaklega við lag í kennslubókinni, sem þær áttu að læra heima. Það var svona, í einfaldaðri nótnaskrift minni:
Rauð, rauð, rauð, rauð, græn, græn, gul
rauð, rauð, rauð, rauð, græn, græn.
Rauð, rauð, rauð, rauð, græn, græn, gul.
rauð, rauð, græn, græn, gul, gul.
Þetta leit ekkert svo voðalega út. Ég var búin að læra rauðu nótuna af þeim systrum og nú þurfti bara að fara vel og rækilega yfir þá grænu og gulu. En þá kom babb í bátinn: Systur mundu ekki fyrir sitt litla líf hvernig átti að framkalla hina fögru grænu og gulu tóna.
Nú kom kennslubókin til bjargar. Aftarlega í henni voru allar nauðsynlegar upplýsingar um nóturnar Ég greip aðra blokkflautuna og fór að æfa. Svo fletti ég upp á laginu fína og ætlaði að spila, en af því að allar síður eru prentaðar í svart/hvítu þá ruglaðist ég strax.
Systur fengu það verkefni að lita nóturnar í laginu rauðar, gular og grænar, til að auðvelda mér spilamennskuna. Þær sátu hvor með sína bókina og tréliti á meðan ég æfði rauða, gula og græna tóna. Loks var ég búin að ná þokkalegum tökum á að loka götum og opna göt á þessari dásamlegu blokkflautu og þá stóð á endum að þær voru búnar að lita nóturnar. Ég spilaði lagið nokkrum sinnum og var afskaplega ánægð með útkomuna.
Svo rétti ég systrum blokkflautur og sagði þeim að gera eins. Þær voru auðvitað með rauðu nótuna á hreinu, en höfðu ekki haft tækifæri til að æfa gulu og grænu, enda uppteknar við að lita á meðan ég blés. Ég barði þekkingu mína inn í þær og svo spiluðu þær lagið hikandi nokkrum sinnum.
Það var komið langt fram á kvöld, systur grétu af þreytu og ég var með heiftarlegan hlustarverk. En var sæl og glöð í þeirri vissu, að tónlist gefur lífinu gildi, enginn verður óbarinn biskup og allt það crap. Ég leyfði þeim loks að fara að sofa.
Daginn eftir fóru þær í skólann með blokkflautuna, kennslubókina og bauga niður á kinnar. Þær voru hins vegar lukkulegar eftir tónlistartímann, enda hafði hann gengið ljómandi vel. Þær sögðu að kennarinn hefði hrósað þeim sérstaklega fyrir að lita nóturnar í laginu, það hefði verið hið mesta snjallræði.
Ég varð aldeilis undrandi að heyra þetta. Gat verið að aðrir foreldrar hefðu ekki þurft að skikka börn sín til að lita nóturnar?
Hafa allir lært á blokkflautu nema ég?
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég á martraðakenndar æskuminningar þar sem ein systir mín tók blokkflautunám sitt alvarlega. Hún spilaði skelfilega "det var en lördag aften" og fleiri slík og misþyrmdi eyrum hinna systranna 6. Enn þann dag í dag, verð ég sjóveik af viðbjóði ef ég heyri einhvern ÆFA sig á blokkflautu
Jenný Anna Baldursdóttir, 19.9.2007 kl. 15:58
Þetta er fórnarkostnaðurinn við hið tónlistarlega uppeldi.
Núna, ári eftir að valkyrjan mín hóf sitt blokkflautunám, er hún byrjuð að læra á saxófón. Ég var með henni í fyrsta tímanum sínum og bara tveimur eða þremur mínútum eftir að hún snerti í fyrsta skipti á saxófón var hún farin að spila sömu lög og hún lærði á blokkflautuna.
Elías Halldór Ágústsson, 19.9.2007 kl. 17:22
Bíddu bara þangað til þær fara að læra á fiðlu... En baslið borgar sig margfalt fyrr en varir!
Harpa J (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 18:00
Ég vona svo sannarlega að þetta borgi sig. Og mér finnst skynsamleg braut frá blokkflautu að saxófóni. Á þessu heimili er gítarnám stundað meðfram blokkflautunni. Ég verð nú að safna kröftum áður en ég segi frá því. Í þeirri sögu eru bláir og bólgnir fingurgómar. Mínir, ekki stelpnanna
Ragnhildur Sverrisdóttir, 19.9.2007 kl. 20:29
Já, þú getur ekki verið síðri á gítar og mandólín en amman... Ég kem á fyrstu nemendatónleikana. Sit fremst. Græt á réttum stöðum. Etc.
hke (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 13:51
Þolinmæði, þolinmæði, þolinmæði... Hlustaðu svo á Gísla Helgason spila á blokkflautuna sína með Hálft í hvoru eða af sólóplötunni hans og þá heyrirðu hve falleg tónlist getur komið úr þessum púkablístrum
Ólafur Jóhannsson, 20.9.2007 kl. 14:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.