A

A er stafur vikunnar.

Það örlaði á hneykslan hjá þeim systrum, sem hafa þekkt A afskaplega lengi. Þær þurftu þó að hafa töluvert fyrir að skrifa lítið a, þetta stóra er miklu einfaldara.

Svo kom að teikningunum fjórum, sem eins og venjulega áttu að vera af einhverju með stafinn A í heitinu.

Margrét teiknaði apa í tré og þar sem Elísabet var sjónarmun á eftir henni að borðinu og þurfti að flýta sér að ná henni teiknaði hún líka apa í tré. En svo fóru þær hvor í sína áttina.

Næstu tvær myndir Elísabetar voru Alma (uppáhaldsfrænka) og lítill og grár hamstur. "Síðasta myndin mín á að vera af Asíu. Hvernig teiknar maður Asíu?" spurði hún í einlægni.

Ég hef aldrei verið drátthög og er þar að auki fyrir löngu orðin svo ferköntuð í hugsun að þetta vafðist fyrir mér. Ég sagðist eiginlega þurfa að leita á náðir Atlasins til að svara þessu. Elísabet nennti ekki bíða á meðan ég fullorðinsvesenaðist og áður en ég vissi af var hún búin að teikna opna bók með mismunandi formum á hvorri síðu. Og spurði svo: "Hvernig skrifar maður Atlas?" Og því gat ég svarað Smile

Margrét var búin að lita apann sinn fagurlega, sem og tréð. Næsta mynd var Amma og svo kom Afi. Þau voru bæði ósköp hrum og þurftu að styðjast við staf. En sólin brosti við þeim báðum og þau bjuggu líka bæði í litlu, rauðu húsi.

Fjórða myndin vafðist ekkert fyrir Margréti. Hún teiknaði í gríð og erg þar til sú fullorðna tók eftir því og steig á bremsurnar. "Bíddu, bíddu, hvað ertu að teikna? Er A í því?" spurði ég.

Margrét sýndi mér teikninguna, af lítilli stelpu. "Margrét," tilkynnti hún hróðug.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú hefur sem sagt misst af Drátthaga blýantinum?

hke (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 09:14

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ónei, ég missti sko ekkert af honum. Og gat yfirleitt hermt eftir fyrstu teikningunni hans, sem leit kannski svona út: (   - )

Á mynd númer tvö voru þessi þrjú strik orðin að 130 og ég játaði mig sigraða. Ég komst því aldrei nálægt þriðju myndinni, sem sýndi t.d. alþjóðlegan flugvöll með 49 mismunandi flugvélum og stórum flugturni þar sem skýrt mátti greina 18 flugumferðarstjóra í harðvítugri launadeilu.

Ekki drátthög, hún ég.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 21.9.2007 kl. 09:34

3 identicon

Einmitt En þú bætir það nú upp með mörgu mörgu öðru. Ég býst við miðum á tónleikana, when and if og engan "kartöflugarð" eða Árna Johnsen grip í repertoir-inu.

hke (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband