22.9.2007 | 02:33
Tilvonandilögfræðingadjamm
Nú er bloggað um miðja nótt! Ég var að ljúka uppvaski eftir frábært kvöldmatarboð með genginu úr lögfræðinni. Auður, Olla, Magga, Dúdda og Leifur mættu hér, mistímanlega þó, og við borðuðum á okkur gat eins og alltaf þegar við hittumst. Forrétturinn var laxaþrenna, hrár lax sem þó var hálfeldaður með sítrónu- og limesafa, reyktur lax og laxahrogn. Aðalréttur Marbella kjúklingur og svo kom Dúdda með guðdómlegt tiramisu. Gott hvítvín, rauðvín, sætt vín með desert, kaffi og koníak. Merkilegt að ég skuli yfirhöfuð geta skrifað En systur eru hérna heima hjá mér, sem býður nú ekki upp á neitt ofurdjamm. Mig grunar að hluti gestanna sé rétt að byrja fjörið í miðbænum núna (o.k., líklega bara tvö þeirra, restin er næstum jafn ráðsett og ég)
Þær systur voru yndislegastar í kvöld, háttuðu sig sjálfar og horfðu á dvd, eins og englar allan tímann. Þær voru búnar að borða þegar gestirnir komu, fóru svo niður og fengu að horfa á ferða-dvd-spilarann í stóra rúmi og sofnuðu þar fljótt og vel. Og stilltu sig alveg um að kalla upp og krefjast þess að við hefðum lægra, eins og þær gera nú stundum og þarf engin læti til. En virðulegur hópurinn þurfti auðvitað engin slík hvatningarhróp.
Magga ætlar að halda næsta boð og þá ætlum við að mæta með maka. Það er tími til kominn að kynna þetta lið hvert fyrir öðru. Best að undirbúa þau samt
Á morgun, eða á eftir, vakna systur að sjálfsögðu óguðlega snemma til að horfa á barnatímann. Svo er gítartími kl. eitt, en þaðan verðum við líklega að bruna beint á uppskeruhátíð yngri flokka Vals. Kata er fjarri góðu gamni, svo ég verð víst að bíta á minn óðum hverfandi KR-jaxl.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jösses hvað þetta dregur mig til baka í tíma. Þegar stelpurnar vöknuðu fyrir allar aldir og foreldrarnir skiptust á að vakna, áður en haninn gól, bókstaflega. Svo var vaðið á stað, á fimleikaæfingar, í spilatíma, í dansskóla og í afmæli, og.. og.. og.. Ég elska það að lesa bara um þetta. Ég er stikkfrí, nema stundum
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.9.2007 kl. 09:22
Ég held ég skilji bílinn áfram eftir í stæðinu þínu fram á sunnudag..
Takk enn og aftur fyrir yndislegt kvöld!!
Ég er strax farinn að hlakka til villibráðar í "sveitinni" hennar Möggu..
Leifur (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 18:22
Það fer ágætlega um bílinn hérna á stæðinu. Þú sækir hann bara þegar hentar. Og svo förum við að skipuleggja sætaferðir í sveitina ;)
Ragnhildur Sverrisdóttir, 22.9.2007 kl. 21:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.