Uppskera

Systur fóru á uppskeruhátíð Vals og bættu enn einni medalíu í safnið. Svo tilkynntu þær að Rakel þjálfari hefði fengið blómvönd. Sáttar við það, enda Rakel í miklu uppáhaldi.

Eftir uppskeruhátíð fóru þær heim með Evu Berglindi og Brynju litlu systur hennar. Eva Berglind er vinkona þeirra af Rauðu deild Sólhlíðar. Þær ætla svo sannarlega ekki að missa samband við hana, þótt Eva sé núna í Hlíðaskóla og systurnar í Fossvogsskóla. Og það er lítil hætta á að sambandið rofni, enda eru vinkonurnar þrjár saman í fimleikum á mánudögum og miðvikudögum og gítartímum á laugardögum Smile

Við mæðgur ætlum að hafa það náðugt í kvöld. Systur vilja endilega fá pizzu og svo eru þær búnar að panta að fá að horfa á Spaugstofuna. Þær hafa aldrei fylgst með Spaugstofunni, en sáu þátt í endursýningu um daginn og fannst hann svona líka ógurlega fyndinn. Pizza, Spaugstofa og popp á dagskránni. Ég er nú alveg sátt við þetta, enda svefnvana og framtakslítil eftir matarboðið góða í gær. 

Ég varð að segja þeim að því miður gætum við ekki náð í mömmu þeirra út á flugvöll á morgun, því vélin lendir ekki fyrr en undir miðnættið. Þetta voru vondar fréttir. Margrét sagði að þær gætu alveg borðað kvöldmatinn snemma, farið svo beint að sofa og vaknað fyrir miðnætti til að aka suður á flugvöll. Hún var alveg bit þegar ég samþykkti ekki þetta stórgóða plan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband