Lasin stelpa, leggur og skel

Það skorti ekkert upp á hugmyndaflugið fremur en fyrri daginn þegar systur myndskreyttu L-blaðið sitt.

Elísabet byrjaði rólega, teiknaði "Lísu", litla stelpu í rauðu pilsi. Svo teiknaði hún "lasin" og á myndinni sést agnarsmá stúlka í rúmi. Næst kom "lamb", fjólublátt og mjög hrokkið, og loks vildi hún teikna "lokka". Hún rissaði fjölmörg strik með blýanti á ská yfir rammann, litaði svo með gulu ofan í. "Lokkar."

Margrét teiknaði "Legg og skel" og hafði fyrir að hlaupa niður í herbergi sitt og róta þar lengi. Kom svo upp með hörpuskel og teiknaði eftir henni, en legginn teiknaði hún "eins og í sjóræningjafána." Næsta mynd var af "gulli", ljómandi gullmola í lófa. Þriðja myndin var "lampi" og hún var ekki lengi að teikna nákvæmlega upp rauða lampann okkar. Þegar kom að fjórðu myndinni var hún hugsi. "Ég vil helst teikna eitthvað svo ég geti skrifað svona i á hvolfi fyrir aftan," sagði hún. "Svona eins og þegar ég teiknaði Í-í-í, hvað mig kitlar!" Sem sagt, upphrópunarmerki. En samt langaði hana mest að teikna engil. Ég sagði henni að ef ég sæi engil myndi ég alveg örugglega hrópa upp yfir mig, svo það væri í fínu lagi að setja upphrópunarmerki. Þá teiknaði hún fallegan, bleikan engil og skrifaði: "Engill!"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband