Jól í júlí

Þegar ég hafði náð í systur í skólann í dag og við vorum sestar inn í bíl hringdi pabbi. Systur urðu vitni að því þegar við feðginin börmuðum okkur vegna fyrirsjáanlegs rjúpuskorts. Við eigum það sameiginlegt að hafa þungar áhyggjur af máltíðum marga mánuði fram í tímann.

Svo ókum við heim og systur spurðu mikið út í jólamatinn. Elísabet fór þá að tala um hangikjöt, eins og alltaf þegar jólin ber á góma. En hangikjötið hefur aðra merkingu í hennar huga, því a.m.k. tvö sumur í röð hefur hún fengið hangikjöt hjá afa Ís á Grundinni þegar við förum vestur á Ísafjörð. Svo kom romsan, sem var einhvern veginn á þessa leið: "Ég hlakka svo til, eða á ég að segja mér, nei mig, ójá, ég hlakka svo til þegar við förum til Ísafjarðar og þá líður mér svo vel af því að þá er stórfjölskyldan, eða kannski ekki öll stórfjölskyldan, en alla vega hálf eða meira og þá líður mér svo vel þegar allir eru saman á Grund og borða hangikjötið. Mér verður alveg heitt í hjartanu og hangikjöt er uppáhalds maturinn minn."

Ég er alveg sammála. Það er ósköp notalegt að hafa fjölskylduna hjá sér og borða góðan mat.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Dúllan.

Annars eru fleiri að drepast úr áhyggjum vegna rjúpnaskorts.  Í fyrsta sinn frá því í bernsku, var undirrituð án rjúpna um síðustu jól.  Martraðarkennt ástand, það segi ég satt.  Er skelfingu lostin yfir tilhugsun um að ástand endurtaki sig.  Sumir eru með áhyggjur af heimsfriði.  Fruss, smámál í samanburði.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.9.2007 kl. 00:43

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Sammála. Fegurðardrottningar geta haft áhyggjur af heimsfriði. Ég vil rjúpur! Ég verð eiginlega að fara að drífa mig á námskeið og kaupa byssu, þá get ég alla vega náð þessum 7 sem mælt er með að hver og einn veiðimaður láti sér nægja að skjóta.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 26.9.2007 kl. 09:44

3 identicon

Alveg heyri ég fyrir mér hvað þetta samtal feðgina hefur verið laust við flúr og óþarfa. Reyndar ekki hægt að heilsast með handabandi símleiðis. Fáðu þér endilega tvær byssur og seldu mér svo hinar sjö á uppsprengdu verði. Engin eru jól án rjúpna. 

hke (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 17:46

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þetta finnst mér æði að lesa, það eru fleiri en ég sem plana löngu fyrirfram
hvernig allt á að vera.
Það er sko gert grín að mömmu gömlu  fyrir skipulagið
Bróðir minn sem sá alltaf fjölskydunni fyrir rjúpu er orðinn svo mikill
rjúpu-friðar-sinni að hann er farinn að ala þær á pallinum sínum
norður í Húnavatnssýslu.
þetta var alltaf þannig að ég fékk rjúpu og hann fékk hákarl
frá Óskari Friðbjarnar á þorranum,
það er á hreinu hann fær engan hákarl meir, er ekki annars Óskar hættur með  verkun?.
Ég snæddi hreindýrakjöt um síðustu jól það er að sjálfsögðu lostæti, en ekki eins og rjúpan.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.9.2007 kl. 20:40

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Það er ekkert, EKKERT, sem jafnast á við rjúpuna

Ragnhildur Sverrisdóttir, 26.9.2007 kl. 23:03

6 Smámynd: Sigríður Hafsteinsdóttir

Ég er einmitt afar svekkt með rjúpnaleysið í fyrra (og eflaust núna líka), var búin að bíða eftir að geta fengið loksins RJÚPU í jólamatinn úrþví ég flutti heim frá Svíþjóð. Gat harkað af mér storma og óveður sökum tilhlökkunarinnar eftir jólunum og rjúpunni langþráðu, en neinei, svo gott var það ekki...

Sigríður Hafsteinsdóttir, 30.9.2007 kl. 23:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband