26.9.2007 | 10:06
Öryggi
Það hefur verið allur gangur á því hvort þær systur hafa verið eins klæddar. Elísabet hefur viljað punta sig dálítið meira en Margrét. Á tímabili var staðan sú, að Elísabet hefði helst viljað vera í pilsi alla daga, en Margrét í æfingabuxum.
Ég kann alla romsuna um að foreldrar tvíbura verði að huga að einstaklingnum og ekki sé endilega æskilegt að klæða tvíbura eins og allt það. Ég hef nú minni en engar áhyggjur af því að þessar stelpur þrói ekki einstaka persónuleika sína. Við höfum aldrei lagt neina sérstaka áherslu á að þær væru eins klæddar. Hins vegar eiga þær eins föt, þótt þær séu ekki alltaf klæddar þeim á sama tíma. Það á sér ósköp eðlilegar skýringar. Þegar við förum t.d. í búð og sjáum mjög flottar gallabuxur, þá kaupum við auðvitað 2 stk. Sama á við um úlpur, peysur, boli, skó. Við kaupum það sem okkur finnst flottast x 2. Vissulega höfum við keypt ólíka liti á peysur og boli, en oftar en ekki er það svo að við kolföllum fyrir einhverju ákveðnu og erum þá ekki til í að kaupa eitthvað sem okkur finnst minna flott fyrir aðra stelpuna. Mér þætti undarlegt ef önnur stelpan væri klædd í föt sem mér þættu allra flottust, en hin í föt sem væru svona second best.
Þegar þær voru kríli voru þær nánast alltaf í eins fötum. Auðvitað vegna þess að það var hrikalega krúttlegt, en líka vegna þess að við áttum í mesta basli að halda kontról á fatabunkanum þegar skipt var um galla á litlum krílum æ ofan í æ. Ég missti alla vega yfirsýnina, vissi ekkert hvað var hvar og hvort það var hreint, nema með því að einfalda hlutina og hafa þær eins. Eins gott að ég var ekki átján barna móðir!
Jæja, þetta er nú útúrdúr. Ástæða þessara vangaveltna er sú, að við tókum eftir því í síðustu viku að Elísabet leggur allt í einu ofurkapp á að vera nákvæmlega eins klædd og Margrét. Hún er ekki sátt ef önnur er í gráum buxum og hin svörtum, jafnvel þótt peysurnar séu eins. Margréti virðist hins vegar slétt sama.
Einn morguninn var Elísabet búin að klæða sig í sokkabuxur og pils og var hin lukkulegasta, þegar hún uppgötvaði að Margrét var að klæða sig í buxur. Hún sagðist þá vilja vera eins og systir og klæddi sig úr. Ég lét þær eiga sig inni í herbergi, en heyrði að Elísabet átti í vinsamlegum samningaviðræðum við systur sína. Svo komu báðar fram og voru þá í sokkabuxum og kjólum. Nákvæmlega eins.
Við röltum í skólann og þá sagði ég Elísabetu að ég hefði tekið eftir að hún vildi alltaf vera nákvæmlega eins og Margrét í skólanum. Og skýringin lét ekki á sér standa. "Ég þekki sko ekki alla í skólanum ennþá og þá finnst mér betra að vera ekki í öðruvísi bol eða buxum eða peysu. Á Rauðu deildinni [á leikskólanum] þekkti ég alla og þá þurfti ég ekki að vera eins."
Í morgun bætti hún svo um betur þegar hún sagði mömmu sinni að sér þætti gott að vera eins og Margrét þessa dagana. "Stundum horfi ég á Margréti í skólanum og þá sé ég hvernig ég er."
Hver og einn leitar víst öryggis á sinn hátt.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er ótrúlega sæt frásögn....Það er örugglega gott að vera tvíburi
Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir, 26.9.2007 kl. 20:29
Þær eru æði þessar stelpur, ég hef nú held ég sagt það áður,
bráskarpar, orðheppnar og þær hafa alltaf hvor aðra.
Svo tala þær um hangikjötið og stórfjölskylduna ef þetta er ekki að vera meðvitaðar
um gæði þess sem er í kringum þær þá veit ég ekki hvað.
Það er svo mikilvægt í dag að vera meðvitaður um annað en sjálfan sig.
Kveðjur til ykkar allra.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.9.2007 kl. 20:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.