Kirkjur og kórónur

Á þessu heimili er til föndurdót, sem systur og mamma þeirra eru afskaplega flinkar að nota. Þetta eru marglitir pinnar og hægt að festa þá saman, af því að í öðrum enda þeirra er segull, en stál í hinum. Svo fylgja þessu líka marglit plastspjöld, sem hægt er að setja á milli pinnanna. Þetta heitir Geo-eitthvað.

Kata er óþreytandi að púsla þessu saman, byggir léttilega hús og jafnvel kirkjur með fagurlega steindum rúðum. Stundum föndrar hún þetta með stelpunum fyrir háttinn og ég hef staðið hana að því að halda áfram eftir að þær eru sofnaðar, enda einkar lagin við þetta, konan.

Mér er gjörsamlega fyrirmunað að skilja þetta. Margoft hef ég reynt, en aldrei tekist svo mikið sem að láta einn plastferhyrning tolla milli fjögurra pinna, jafnvel þótt dótið liggi á borði fyrir framan mig. Systur, sem hafa löngum kallað mig Klaufamömmuna sína, eru farnar að vara sig á mér. Ef rúða dettur úr kirkju og mamma þeirra er hvergi nærri, þá tilkynna þær alltaf að þær ætli bara að bíða eftir að hún komi aftur. Ég skuli bara láta þetta eiga sig.

Það eru engin takmörk fyrir dundinu í þeim mæðgum. Fyrir utan hús, kirkjur og aðrar byggingar, þá fara þær létt með ýmislegt annað. Einu sinni gerðu þær kórónur, sem voru stórglæsilegar, þótt óneitanlega væru þær dálítið þungar á litla kolla. Elísabet bætti svo við einföldum veldissprota og hálsmeni. Þær heita nú báðar drottningarnöfnum, svo þetta var við hæfi.

Jólaboð4

Mömmulistaverk2

Önnur kórónan skemmdist fljótlega, þegar ég reyndi að hreyfa við henni. Hin var notuð í kirkju.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kona getur ekki verið fullkomin í öllu, bara nánast öllu.  Takk fyrir færslu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2007 kl. 20:35

2 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Já - ég segi þetta við mínar dætur að þó ég geti ekki hitt og þetta þá sé mér nú margt til lista lagt. Þær eru alveg á þessari línu - að enginn sé góður í öllu en allir góðir í einhverju.

Ég minni þær líka reglulega á að þó ég hvorki prjóni né hekli þá sé mér einkar lagið að syngja, bulla, hlæja og skemmta þeim með ýmsu móti

Ég segi nú ekki að þær kunni alltaf að meta það sem ég ber á borð fyrir þær úr skemmtana geiranum

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 28.9.2007 kl. 12:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 786279

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband