Viðbjóður

Nú styttist í að fótboltaæfingar vetrarins hefjist. Þær systur taka því fagnandi, enda ekki farið á æfingu síðan þær voru litlar, að eigin sögn. Það mun hafa verið í ágústlok.

Systur virðast aldrei fá nóg af æfingum, hoppi og skoppi. Þær eru í leikfimi og íþróttaskóla í Fossvogsskóla og fara í fimleika tvisvar í viku.

"Viðbjóðslega gaman," sagði Elísabet þegar mamma hennar spurði hana hvernig hefði verið í íþróttaskólanum.

"Viðbjóðslega gaman?" hváði Kata, sem hélt áreiðanlega að stelpuskottið yrði ekki unglingur fyrr en eftir nokkur ár.

Elísabet heyrði spurnartóninn og hikaði, en ákvað svo að rækta í sér unglinginn. "Já, VIÐBJÓÐSLEGA gaman!"

Á þessari mynd er Elísabet í viðbjóðslega flotta Valsgallanum sínum að gefa dúkkunni sinni  viðbjóðslega góðan graut.

Í Valsbúningi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jesús minn hvað barnið er VIÐBJÓÐSLEGA fallegt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.9.2007 kl. 11:54

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Þakka þér alveg viðbjóðslega mikið

Ragnhildur Sverrisdóttir, 28.9.2007 kl. 12:21

3 identicon

Ég rakst fyrir skömmu á þessa síðu, alveg óvart, en þar sem þetta eru svo skemmtilega skrifaðir pistlar má ég til með að kíkja öðru hvoru - maður hefur jú alltaf gott af því að brosa og rækta barnið í sér. Vildi kvitta fyrir innlitið svona einu sinni. Takk fyrir mjög svo "gleðilegt" blogg.

Guðrún (ókunnug) (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 19:56

4 identicon

HAHAHA

minn 5 ára er hjá Val líka

en það er ógó gaman og ýkt cool

Kristín (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 21:10

5 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Áfram Valur!!!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.9.2007 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 786279

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband