Frábært Gott kvöld

Í dag sáum við barnaleikritið Gott kvöld í Þjóðleikhúsinu. Reyndar er verkið sýnt í Kúlunni við Lindargötu, en Þjóðleikhúsið er það nú samt.

Við mæðgur vorum allar alsælar Grin Mestu skiptir auðvitað að stelpurnar hlógu mikið og lifðu sig mjög sterkt inn í leikritið. Það er um lítinn strák, sem er einn heima um kvöld þegar pabbi hans þarf að skreppa frá til að ná í mömmuna. Strákurinn er dálítið smeykur og svo lifna við alls konar verur, Hungurvofan, Hræðslupúkinn, Fýlupokinn, Tímaþjófurinn og fleiri og fleiri. Þarna fléttast saman skemmtileg gervi og brúður. Alveg viðbjóðslega skemmtilegt, svo orðfæri Elísabetar sé notað.

Þetta er ekki langt verk, bara 40 mínútur, en það hentar auðvitað ágætlega litlum krílum. Mæli með þessu. Og foreldrum leiðist hreint ekkert allan tímann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 786279

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband