30.9.2007 | 22:00
Singing in the rain
Eftir kvöldmatinn í gær, laugardag, ákváðum við mæðgur að fara í gönguferð um hverfið. Systrum fannst það ótrúlega spennandi. Það var auðvitað dimmt úti, svo Margrét tók með sér vasaljós. Svo skikkuðu þær mig til að fara með mittistösku og geyma í henni dálítið súkkulaði og appelsín. Þeim fannst þær ekki geta farið ónestaðar í svona mikla ferð.
Við gengum af stað rétt rúmlega átta. Elísabet velti fyrir sér hvort við myndum lenda í vandræðum ef lögreglan sæi okkur, en við sannfærðum hana um að stelpur mættu alveg ganga úti í rigningunni að kvöldlagi ef mömmur þeirra væru með. Svo gengur við í vestur, alla leið í Bjarmaland, fórum þaðan niður í Fossvogsdalinn og röltum göngustíginn heim. Röltið tók heilan klukkutíma og það rigndi allan tímann. Af og til beindi Margrét vasaljósinu að gegnsósa ánamöðkum, en annars voru þær systur svo uppteknar að tala og syngja að ekkert annað komst að. Og stundum þurfti að stoppa og fá einn súkkulaðimola í munninn; dálítið eldsneyti til að komast alla leið.
Þegar við komum heim fóru systur beint í háttinn og steinsofnuðu um leið. Þær vildu endilega endurtaka leikinn í kvöld, en sættust á að það væri ekki góð hugmynd á sunnudegi. Þess í stað lásu þær lestrarheftin sín fram og til baka. Og tilkynntu fyrir svefninn að helgarfrí væru allt of stutt.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 786279
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það kallar alltaf fram skemmtilegar minningar hjá mér þegar minnst er á Fossvoginn, dalinn og Fossvogsskóla. Amma mín bjó í Grundarlandinu og maður lék sér þarna í kring sem krakki. Þráði til dæmis ekkert heitar á einhverju tímabili en að fá að vera í Fossvogsskóla. Elska þetta hverfi.
Björg K. Sigurðardóttir, 30.9.2007 kl. 22:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.