Trade mark

Systur fóru í afmæli til gamals félaga á Rauðu deildinni í dag. Angelo varð 6 ára og veislan var endurfundir leikskólakrakkanna, þótt einn og einn nýr skólafélagi fengi að fljóta með Smile Eftir pizzu og köku fóru krakkaskarinn út á leikvöll og þar tíndi ég alsælar systur upp rétt fyrir klukkan sjö. Þær ætluðu ekki að fást heim, þetta var svo gaman.

Þær töluðu út í eitt yfir kvöldmatnum, eins og venjulega, en svo tóku þær góða lestrarsyrpu fyrir svefninn. Margrét er komin á fulla ferð, las allt léttlestrarheftið sem hún kom með heim úr skólanum og til viðbótar litla lestrarbók sem við keyptum einhvern tímann síðsumars. Hún ætlaði ekki að fást til að hætta og ákvað að lesa meira um leið og hún vaknar í fyrramálið. Hún á eftir að verða mikill lestrarhestur.

Elísabetu gengur ekkert síður að kljást við stafina, en hún hefur ekki enn fundið þennan mikla áhuga. Hún les allt samviskusamlega og rekur sjaldan í vörðurnar, en hún les ekki í tíma og ótíma af skiltum, dagblöðum og fatnaði, eins og systir hennar. Margrét las t.d "trade mark" af peysunni sinni og velti fyrir sér hvað það þýddi. Það minnti mig á söguna að kellingunum á Ísafirði, þar sem hann afi minn klæðskerinn rak fataverslanir í áratugi. Þær skoðuðu nýjustu sendinguna og svo kvað önnur þeirra upp úr með að þær væru nú alveg frábærar, þessar vörur frá trade mark (lesið með dönskum framburði, ekki enskum.)

Alla vega, hér eru systur að verða fluglæsar. Það liggur við að ég öfundi þær af öllum frábæru bókunum sem þær eiga eftir að lesa um ævina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Já - hann er líka frábær þessi tónsmiður sem heitir Trad.

Svona ein saga með - kona sem ég þekki fékk sér rosalega flottar flísar á baðherbergið og var einhver mjög þekktur hönnuður sem teiknaði. Ein flísanna var með fangamarkinu hans á. Það komu gamlar frænkur í heimsókn og dáðust mjög að baðinu. Ein rak augum í flísina með fangamarkinu á og nefndi við húsráðanda að hún gæti nú örugglega náð þessum óhreinindum af flísinni með skúripúlveri.....

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 2.10.2007 kl. 13:06

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Já, Trad. á mörg góð lög ;) Og hefur átt mjöööög langa og pródúktíva ævi.

Góða sagan með flísarnar

Ragnhildur Sverrisdóttir, 2.10.2007 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband