Hrollur

Margrét getur verið afskaplega klígjugjörn, eins og margoft hefur sannast. Fyrir kvöldmatinn sagði hún mömmu sinni að hún kynni mjög óhugnanlega sögu. "Treystirðu þér?" spurði hún svo. Jú, mamma hennar treysti sér til að heyra söguna.

Þá kom saga um strák sem slasaðist á auga. Margrét var varla byrjuð að segja söguna þegar hún greip fyrir eyrun á sjálfri sér, svo hún þyrfti ekki að heyra hryllinginn. Sú varúðarráðstöfun dugði illa, en hún lét sig nú hafa það að segja söguna.

Þær mæðgur komu að matarborðinu og Margrét hryllti sig alla. Ég spurði hvaða voðalega saga þetta hefði verið, en Margrét harðbannaði að málið yrði rætt svo hún missti ekki matarlystina. "Þú mátt segja henni söguna þegar ég er sofnuð," sagði hún við mömmu sína.

Elísabet áttaði sig á hvaða saga þetta væri. Henni fannst óþarfi að bíða með söguna fram yfir háttatíma og sagði mömmu sinni að hún mætti segja mér hana. "En bara á útlensku og bara ef útlenskan er ekkert lík íslensku."

Kata ákvað að láta söguna bíða betri tíma, enda fiskurinn farinn að kólna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband