Útvarp Umferðarstofa

Við gengum í skólann í morgun, enda var Kristín Björg Þorsteinsdóttir búin að segja að það ætti maður að gera og auðvitað hvarflar ekki að mér að andmæla.

Þegar ég sagði systrum að við ætluðum að ganga kom gleðióp, eins og alltaf þegar við göngum.

Ég held við ættum að stefna að því að hafa "göngum-í-skólann" mánuð og í framhaldinu "göngum-í-skólann" skólaár. Þetta eru svo ljúfar stundir.

Svo fremi sem ekki er "lítil-börn-halda-sér-í-ljósastaura" óveður, þá göngum við.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Húrra fyrir ykkur mæðgum!! Og það er mjög gott mál að þú gegnir mér!!

Það verða vonandi myndir í fréttatíma sjónvarps klukkan 19:00 í kvöld. Átakið fór formlega af stað í morgun og Ríkislögreglustjóri fór með 1.bekkingum úr Mýrarhúsaskóla út að ganga við skólann. Það dugir ekkert minna....

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 3.10.2007 kl. 14:47

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég verð að tryggja að systur sjái fréttina ekki! Ég kæri mig ekkert um að þær heimti borðalagðan fylgdarmann í skólann

Ragnhildur Sverrisdóttir, 3.10.2007 kl. 15:31

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Minna má það ekki vera Ragnhildur mín, borðalagður og júníformaður "skólafylgdarmaður" með stjörnuljós.  Ójá.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.10.2007 kl. 15:37

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Megi dætur mínar aldrei heyra til þín, Jenný! Ég er einfaldlega ekki nógu glysgjörn fyrir svona nokkuð!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 3.10.2007 kl. 15:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband