5.10.2007 | 09:47
Eitt lið, tvö lið
Systur fóru á fyrstu fótboltaæfingu vetrarins í gær. Þær voru himinlifandi að fá að æfa í nýja Valsheimilinu, enda er öll aðstaða þar nú örlítið betri en í því gamla
Þegar við gengum inn í nýja húsi þyrmdi allt í einu yfir Elísabetu. "Þetta er Víkingsgalli" sagði hún og virtist ætla að snara sér úr æfingagallanum á staðnum. Gallarnir þeirra eru svartir með rauðum röndum á hliðum. Ég benti henni á að þær hefðu fengið gallana þegar þær voru í fótboltaskóla Vals í sumar og þá hefði enginn kallað þá Víkingsgalla. Hún tók nú strax sönsum, eins og venjulega. Hitt er svo annað mál, að í Fossvogsskóla eru margir krakkar í nákvæmlega svona göllum og í því umhverfi eru þetta auðvitað Víkingsgallar.
Þær hittu margar vinkonur úr Hlíðahverfinu á æfingunni og voru alsælar með það. Stundum gleymdu þær sér í vinkonuknúsi úti á miðju gólfi, en annars halda þær merkilega vel einbeitingu á þessum æfingum. Þeim finnst bara svo gaman.
Allra skemmtilegast fannst þeim þegar skipt var í tvö lið og þær fengu að spila. Elísabet var út um allan völl, fremst í sókn og öftust í vörn. Margrét var í hinu liðinu og stóð í marki lengst af. Hún varði nokkrum sinnum, en svo þrumaði systir hennar boltanum í netið.
Og hvað átti ég að gera? Fagna frábæru marki Elísabetar? Orga á Margréti að þetta gengi bara betur næst? Fara í sturtu?
Lífið er auðveldara þegar þær keppa í sama liði.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það væri gaman að heyra þær ræða um leikinn sín á milli. Gæti trúað þar falli nokkur gullkorn hjá fótboltadúllunum þínum. Þær er efnilegar, systurnar. Yndislegt að lesa pistlana þína. Takk og kær kveðja.
Auður (IP-tala skráð) 5.10.2007 kl. 14:34
Fátt krúttlegra en krakkar í fótbolta sem taka sig ekkert allt of hátíðlega! Þegar sonur minn var á sjötta aldursári ákvað hann í miðjum spennuleik með froðufellandi foreldra á hliðarlínu að klóra sér í kálfanum og stöðvaði með því leikinn því boltinn var hjá honum! .. Ég held ég myndi mælast til þess að dæturnar spiluðu með sama liðinu næst til að einfalda hlutina. Nógu margar aðrar eru þær lífsflækjurnar.
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 5.10.2007 kl. 15:27
Alveg nýr vinkill á málinu - gerir þetta flókið þegar þær eru í sitthvoru liðinu.......
Það var líka gaman þegar stelpurnar mínar voru í Krúttakórnum hjá Jónsa í Langholtskirkju. Þar var nú ekkert verið að spekúlera í því hvort viðeigandi væri að fletta upp um sig í miðju lagi - nú eða ganga fram kirkjugólfið og kalla stundar hátt að maður þyrfti að pissa.
Mér þótti ég rosalega sundurtætt þegar sú yngir byrjaði að læra að lesa og sú eldri og lesblinda gat lítið stautað. Fyrst fannst mér erfitt að hrósa þeirri yngri þegar sú eldri heyrði en svo sá ég hvað það var ósanngjarnt. Við höfðum alltaf hrósað þeirri eldri fyrir alla viðleitni en svo átti sú yngri ekki að fá að upplifa hrós þegar vel gekk í lestrinum. Það er nú einu sinni svo að læra að lesa er einhver mesta upplifun sem hægt er að hugsa sér og að taka hrós og uppörvun frá barni er ekki fallegt.
Sú yngri er komin langt fram úr þeirri eldri í öllu námi - ekki auðvelt - en samt er það nú þannig að sú eldri nýtur enn virðingar vegna aldurs og reynslu. Þetta er ekkert einfalt en þær eru voða góðar systur þó svo að upp úr sjóði svona stundum.
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 5.10.2007 kl. 16:01
Þetta hefur verið ljóta klemman. Ég er búin að velta þessu fyrir mér heillanga stund og mér sýnist sturtan vera besta ráðið. Mér finnst svo gaman að lesa um stelpurnar þínar. Það er að sumu leyti vegna þess að mamman segir svo skemmtilega frá, einföldustu hlutir verða snilldin ein. Eins og ég var fegin þegar mitt yngsta lauk grunnskóla þá örlar aðeins á söknuði nú þegar ég les um þínar skvísur í fyrsta bekk.
Ragnheiður , 5.10.2007 kl. 16:31
Blessuð og sæl, Jóhanna yfirtorfuleggjari og kaffipásukjaftari! Ég veit að þú átt hina fjölbreytilegustu tvíburareynslu að baki. Takk fyrir innlitið.
Það er örugglega líka mikil kúnst að stýra heimilum eftir aldursröð systkinanna, að ég tali nú ekki um þegar börnin eru ekki samstíga í þroska. Við upplifum oft hér að okkur hættir til að sleppa hrósi, eða hrósa báðum, þegar önnur stendur sig vel. Ef maður er vel meðvitaður um þetta, þá leysist þetta allt saman. Og varðandi fótboltann, þá er líka mikilvægt fyrir þær að kunna að tapa, þótt systir þeirra sé í vinningsliðinu. Margrét stóð sig fantavel í markinu og fékk að heyra það, en hún er líka strax búin að læra að þrátt fyrir góða frammistöðu er hægt að tapa. Og að það er bara allt í lagi. Við verðum að gæta þess að pakka þeim ekki of mikið inn í bómull. Um daginn sagði kennari við Fossvogsskóla, að börnin hefðu mjög gaman af að spila. Hins vegar væru þau mörg hver að tapa í fyrsta skipti, því foreldrarnir hefðu alltaf leyft þeim að vinna!
Það getur verið erfitt að ganga á vegg raunveruleikans í 1. bekk
Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.10.2007 kl. 00:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.