Börn og eiturlyf

Systur verða stundum mjög uppteknar af ljótleika heimsins.

Um daginn hafði hvarf litlu stúlkunnar í Portúgal, Madeleine, verið rætt í skólanum. Bekkjarsystkini þeirra höfðu heyrt af málinu, en sagan sem þær komu með heim var dálítið skrítin. Þær vildu fá að vita hvort það væri virkilega rétt að einhver hefði tekið litla stelpu frá mömmu hennar.

Ég varð að segja þeim undan og ofan af málinu. Þær spurðu mjög mikið og höfðu gríðarlegar áhyggjur. Ég átti auðvitað engra kosta völ en að segja þeim sem réttast frá. Þótt ég léti auðvitað allar óstaðfestar vangaveltur eiga sig. Eða hvernig er hægt að segja að sumir gruni foreldrana um græsku?

Og svo fóru þær að velta fyrir sér hvort svona nokkuð gæti gerst hér á landi. "Er húsið okkar alltaf læst á nóttunni? Getur einhver farið inn um gluggann?"

Ég hélt að þær væru að róast þegar nýtt umræðuefni skaut upp kollinum. Eiturlyf.

Þær reyndust óttast fíkniefni öllu meira en barnaræningja. Einhver dramatík hefur verið í gangi meðal bekkjarfélaganna, því ég fékk ítarlegar spurningar um hvort fólk sem ætti börn notaði eiturlyf, hvort það væri vont við börnin sín, hvað börn gætu gert ef foreldrarnir notuðu eiturlyf og þar fram eftir götunum.

Ég átti fullt í fangi með að svara þessum spurningum, en gat þó alla vega sannfært þær um að hvorki ég né mamma þeirra notuðum nokkurn tímann fíkniefni. "Ég vissi það alveg, en stundum þarf maður að spyrja svo heilinn manns fari ekki að hugsa eitthvað vitlaust," sagði Margrét. Rétt hjá henni.

Elísabet spurði hvort við myndum örugglega þekkja eiturlyf ef við sæjum þau. Eða hvort við mamma gætum kannski tekið eiturlyf alveg óvart og orðið ruglaðar.

Ég sagði að við myndum þekkja þau, það væri engin hætta á að þau þvældust allt í einu inn á heimilið án þess að við áttuðum okkur á hvað þar væri á ferðinni. Margrét greip fram í: "Auðvitað þekkir hún eiturlyf, hún skrifaði einu sinni bók um þau!"

Sem er rétt, það gerði ég reyndar fyrir 11 árum.

"Er löggan alls staðar við sjóinn?" spurði Elísabet, sem hafði haft pata af dópskútumálinu á Fáskrúðsfirði. Ég varð að segja henni að því miður gæti löggan ekki passað alla strandlengjuna.

Þær óttuðust báðar að kannski myndi einhver laumast inn í húsið okkar og láta okkur taka eiturlyf. Ég útskýrði að dópsalar færu ekki að leita uppi fjölskyldur í úthverfum til að ryðjast inn á þær og þvinga þær til að taka dóp. Dópsalar væru voða lítið í gjafabransanum, þeir vildu peninga.

Ég óttast auðvitað að þessi yfirlýsing mín reynist röng þegar þær komast á unglingsár. En hún dugði til að róa 6 ára stelpuskott.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Þessi færsla er svo yndisleg, mikið eru þær að spá í hlutina. Ég vona að aldrei neitt slæmt hendi þær. Sorg mæðra sem horfa á eftir börnum á glapstig er sár,afar sár.

Einu sinni voru synir mínir líkir þeim og vildu flest fá að vita..það var áður en ringulreiðin öll byrjaði.

Takk fyrir fallega færslu, mér þótti gaman að lesa hana.

Í leiðinni, til hamingju með stóru systur

Ragnheiður , 11.10.2007 kl. 23:15

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk fyrir, Ragnheiður.

Sorg foreldra er mikil sem þurfa að horfa upp á börnin sín lenda á villigötum og geta ekkert að gert. Ég hef fylgst með bloggsíðunni þinni og veit að þín sorg er mikil. Um leið dáist ég að því hvernig skilyrðislaus ást þín skín ávallt í gegn. Þú átt samúð mína alla.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 12.10.2007 kl. 09:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband