Trúður

Kata var að lesa bók fyrir systur áður en þær fóru í rúmið. Í sögunni var lítil stelpa eitthvað leið og jafnvel þótt pabbi hennar gerði uppáhaldsbúðinginn í kvöldmat og mamma hennar gerði allt til að koma henni í gott skap dugði það ekki til.

Á mynd í bókinni var mamman eins og trúður að reyna að koma stelpunni til að brosa. Elísabet lýsti því yfir, að þetta væri nú verra en að vera í vondu skapi. Vegna þess að maður færi nú bara í verra skap ef einhver væri að láta svona við mann. En aðalástæðan var þessi: "Ef mömmur láta svona þá er eins og þær séu bara einhver smábörn og það er nú ekki gott!"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mömmu eiga einfaldlega ekki að haga sér eins og agúbörn, fíflast og asnast.  Hver getur eiginlega boriði virðingu fyrir "sollis" konum?  Hehe. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.10.2007 kl. 12:32

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hmm, Kata varð nú eiginlega dálítið krumpuð yfir þessari yfirlýsingu, enda leitun að konu sem hegðar sér jafn kjánalega stundum  En hún gætir þess að gera það innan veggja heimilisins, enda er Elísabet dugleg að gera athugasemdir ef við ætlum eitthvað að hegða okkur asnalega á opinberum stöðum. Einu sinni vorum við í sundi og Kata var eitthvað að stríða þeim og hafði of hátt, að mati Elísabetar, sem svamlaði til hennar og hvæsti á milli samanbitinna tanna: Ætlarðu að láta fólk sjá þig svona??!!

Og um daginn, þegar ég gekk með þeim í skólann og skellti fínu flíshúfunni á kollinn voru systur algjörlega samtaka. Þær báðu mig vinsamlega að taka þetta af mér.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 15.10.2007 kl. 13:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband