Ó

Stafur vikunnar er Ó. Ég gat ekki stillt mig, heldur skellti þeim beint í heimalærdóminn þegar við komum heim.

Margrét teiknaði fjórar Ó-myndir. Fyrst teiknaði hún blað þar sem stóð: Mig langar í bíl og bát og bolta. Óskalisti.

Svo teiknaði hún skrautlegan bolta og fót í takkaskó. Fótbolti.

Þriðja myndin var af fjólubláum hnykli og rauðum prjónum. Prjónar.

Og sú síðasta var af þéttskrifuðu nótnablaði. Nótur.

Elísabet náði tveimur ó-um undir myndina sína af rauðum prikstelpum að berjast um fótbolta við grænar prikstelpur. Fótboltamót.

Því næst teiknaði hún óskaplega fína, bleikklædda stelpu í silfurskóm. Jól.

Þriðja myndin var einföld. Sól.

Sú fjórða var endurnýtt af Í-blaðinu. Trampólín.

O, nú verð ég að bíða heila viku eftir næsta staf Wink

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kannski er möguleiki fyrir "sumar" mömmur að fá að setjast á skólabekk með börnunum sínum.  Hm...

JÓL, mér hlýnar að innan.  Búin að redda rjúpu?  Ef þú ert með afgangs kvikindi þá veist þú hvert þú beinir þeim erþaeggi?

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.10.2007 kl. 19:26

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Það flottasta við þessa jólamynd hennar var að fyrir utan stelpuna í ofsa, ofsa flottum sparifötum var ekkert að sjá, nema horn á veisluborði. Elísabet er mikil matmanneskja. Hún var löngu búin með myndina þegar hún virtist fá einhverja bakþanka. Þá skellti hún inn jólatré, en vandaði sig ekkert sérstaklega, enda voru aðalatriðin komin, fín föt og góður matur.

 Jenný: Er eitthvað til sem heitir "afgangs" rjúpa?? Ég hef aldrei rekist á slíkt kvikindi á ævinni, en skyldi hún slæmast til mín þá myndi ég glöð beina henni til þín.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 16.10.2007 kl. 20:13

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahaha, rétt hjá þér Ragnhildur, þær eru ekki til Afgangsrjúpukvikindin. Nema núna auðvitað - á prenti

Jenný Anna Baldursdóttir, 16.10.2007 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband