18.10.2007 | 13:43
Samúræji
Á þessu heimili er lítill samúræji.
Margrét hefur af einhverjum ástæðum alltaf verið heilluð af bardagalist af austurlenskum uppruna. Hún hefur skellt sér fyrirvaralaust í ógnandi stellingar, öskrað HOOOOOOO-JA!! af öllum lífs og sálar kröftum og látið höggin og spörkin dynja á hverju sem fyrir verður.
Núna lætur hún ekki nægja að berjast vopnlaus. Um leið og hún kemur úr skólanum fer hún í einföld bómullarnáttföt, setur band um ennið og hnýtir breiðan linda um mittið. Svo bindur hún plastsverðið í slíðrinu á bakið og kórónar loks múnderinguna með svörtu og silfruðu fótboltalegghlífunum sínum. Þá finnst henni samúræja-útlitið fullkomnað. Sem það auðvitað er og ég verð að muna að skella inn mynd fljótlega).
Svo gengur þetta litla, engilfríða stelpuskott um heimilið og ef hún mætir einhverju mótlæti, raunverulegu eða ímynduðu, þá hvessir hún á mann augun, stendur á öðrum fæti og hreyfir hendur í ógnandi hoja-stellingum, sem eiga að gefa til kynna að hún geti gengið frá hverjum sem er með snöggu og hnitmiðuðu höggi með handarjaðri. Ef viðmælandinn lætur sér ekki segjast teygir hún aðra hönd snöggt aftur fyrir sig og sveiflar fram sverðinu.
Elísabet hefur afskaplega gaman af þessum töktum systur sinnar, hlær bara og minnir okkur á hvað það var nú fyndið þegar Margrét öskraði HOOOOO-JA!! á veitingastaðnum í Kaupmannahöfn, af því að hún sá íspinna með mynd af karate-kappa. Einstaka sinnum reynir Elísabet að leika þessa hoja-takta eftir, en fer alltaf að hlæja svo hún verður ekkert sérstaklega ógnvekjandi, öfugt við systur hennar.
Við Kata erum eiginlega bara aldeilis forviða.
Stundum langar mann til að öskra á þennan baráttuglaða samúræja: HVAÐ GERÐIRÐU VIÐ HANA MARGRÉTI, SKÖMMIN ÞÍN?!
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sé hana fyrir mér í stellingunum og lyfta sér aðeins upp á annan fótinn og hendurnar í sveiflu og öskra HOOOOO-JA þegar myndin á ísnum birtist og þá... er ísinn hennar!
Edda Agnarsdóttir, 18.10.2007 kl. 16:07
Ég velti fyrir mér, er barn andsetið af gömlum japönskum hermanni, eða er þetta örminni úr fyrra lífi? Eitthvað karma dæmi? Eitthvað er þarna í gangi sem verður að kanna nánar. Muhahaha
Jenný Anna Baldursdóttir, 18.10.2007 kl. 17:40
Það er uppstytta í samúræjastælunum í dag. Í þessum skrifuðum orðum er Margrét bleikklædd Barbie. Og syngur um Barbie.
Ég reikna fastlega með að samúræjinn snúi tvíefldur til baka á morgun.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 18.10.2007 kl. 19:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.