Silfurskeið

Elísabet var að leika sér með litla dúkku. Hún gaf henni að borða með agnarsmárri, silfraðri skeið. Ég spurði hana hvort hún vissi hvað það þýddi þegar sagt væri að einhver væri fæddur með silfurskeið í munni. Nei, hún vissi það ekki. Ég útskýrði fyrir henni að það væri þegar einhver hefði nóg til alls, skorti aldrei nokkurn skapaðan hlut.

"Eins og ég" sagði hún án þess að líta upp.

Við kvöldmatarborðið bað hún mig að spyrja Margréti að þessu sama. Ég spurði Margréti og hún kannaðist nú ekki við orðatiltækið.

Elísabet tók að sér að útskýra: "Sko, það er þegar maður á alltaf allt og það er alltaf verið að dekra mann og maður fær allt sem mann langar í."

"Alveg eins og ég?" spurði Margrét, sem var alveg með á nótunum.

Það er ekki hægt að kvarta undan að þær systur kunni ekki að meta aðbúnaðinn LoL Litlu dekurrófurnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mikið er þetta nú yndislegt. Elsku börnin sem alltaf eru svo hrein og bein.  Dóttir mín missti pabba sinn 4ra ára og ég sagði einu sinni við hana þá ca. 14 ára, Solla mín finnst þér ekki að þig hafi skort mikið að hafa ekki pabba, hún hugsaði sig um góða stund og sagði svo, mamma veistu þú hefur nú bara alveg dugað.  þegar hún var 15 ára giftist ég aftur og hún er núna 29 og segist eiga besta fóstrupabba í heimi sem þýðir bara eitt, að ég er gift besta manni í heimi. Værirðu til í að undirrita lista á síðunni minni í sambandi við kjör öryrkja.??

Ásdís Sigurðardóttir, 18.10.2007 kl. 20:22

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta er plús í kladdann.  Eruð þið mæður nokkuð að hamast með silfurskeiðasett í uppeldinu?

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.10.2007 kl. 20:57

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Búin að kvitta, Ásdís með yndislegu dótturina

Jenný, ég óttast stundum að  blessuðum börnunum svelgist á 12 manna settinu af pjúra silfri, sem mæðurnar halda að þeim alla daga

Ragnhildur Sverrisdóttir, 19.10.2007 kl. 06:08

4 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Þetta er alveg dásamlegt. Eitt sinn átti mín að skrifa um kröfur og frekju og vilja of mikið. Hún var nú alveg viss um að hún væri nú ekkert með of miklar kröfur í lífinu - væri t.d. ekkert að heimta fleiri tómstundir þó hún væri bara í karate og tónlistarskóla. Þá ákvað ég að kominn væri tími á núll stillingu!

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 19.10.2007 kl. 08:21

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hahaha! Já, það er gott að gleðjast yfir litlu!

En segðu mér annars: Hvernig á að núllstilla? Verður maður að gera það strax, eða er hægt að gera það við 13 ára aldurinn?

Ragnhildur Sverrisdóttir, 19.10.2007 kl. 10:08

6 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Mér finnst ég vera í stanslausri núllstillingu. Það er einhvernveginn þannig að það er gengið eins langt og hægt er. Aðallega er maður í að tala þau niður - gera þeim grein fyrir að hlutirnir eru ekkert sjálfsagðir. Ekkert svartsýnisraus og tala um "að allir hafi það nú ekki svona gott" heldur bara að það er ekkert sjálfgefið að hafa nóg að bíta og brenna og að geta ferðast og keypt föt.

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 19.10.2007 kl. 12:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband