Leikrit

Margrét ætlaði aldrei að vakna í morgun, eftir tæplega 11 tíma svefn. Helsta ástæðan var sú, að hún hafði skriðið upp í stóra rúm einhvern tímann í nótt og þar er greinilegt best að kúra.

Kata taldi sig hafa séð við þessu þegar hún sagði: "Margrét, þú manst að þú átt að leika í leikriti í dag?"

Þetta virtist ætla að virka, því Margrét glennti allt í einu upp augun. En svo áttaði hún sig auðvitað á til hvers leikurinn var gerður, kreisti augun saman aftur og sagði: "Já, það er best að ég hvíli mig aðeins lengur svo ég verði hress þegar ég fer að leika!"

Hún fékkst nú samt á fætur fyrir rest og passaði vel að allir leikmunir væru með. Hún á að leika ömmu, svo hún tók með sér virðulegan hálsklút. Svo fékk hún svartar gleraugnaumgjarðir og var þegar búin að endurskrifa leikritið til að koma þeim vel til skila: "Sko, ég ætla að byrja á að segja: Hvar ætli gleraugun mín séu? Og svo finn ég gleraugun á borðinu og þá get ég byrjað að leika."

Elísabet fylgdist vel með þessu öllu og fannst greinilega alveg nóg um þegar mömmur voru búnar að rífa gler úr gömlum gleraugnaumgjörðum og voru á þönum í kringum leikkonuna. Sjálf leikur Elísabet í leikriti í skólanum eftir þrjár vikur. "Ætlið þið líka að hugsa svona mikið um mitt leikrit?" spurði hún. Við lofuðum að gera það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Barn farið að feta listabrautina með tvo virka umboðsmenn.  Liz Taylor átti bara eina mömmu og umboðsmann.  Börn öfundsverð.

Njótið helgarinnar

Jenný Anna Baldursdóttir, 19.10.2007 kl. 10:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband