Mamma hans Bamba litla

Stundum halda mæður að stelpur séu miklu viðkvæmari en þær eru.

Fyrir allnokkru velti ég mjög fyrir mér hvort stelpurnar þyldu að horfa á myndina um Bamba litla, enda afskaplega dramatískt þegar mamma hans er skotin. Ég leigði samt myndina, en settist á milli þeirra og horfði á hana með þeim.

Svo kom að dramatíkinni. Mamman og Bambi hlupu yfir engi á æðisgengnum flótta undan mönnum með byssur. Allt í einu heyrðist ógnarhvellur. Bambi hljóp einn áfram og komst í skjól í skóginum. Þar tók faðir hans á móti honum. Mamman var dáin.

Ég beið með öndina í hálsinum og reiknaði með ekkasogum frá systrum. Ekkert slíkt kom.

"Er mamman dáin?" spurði Elísabet. Ég sagði, eins og satt var, já, mamman var dáin.

Engin sérstök viðbrögð við því.

Í næstu senu er Bambi á einhverju vappi og sér þá reyk stíga upp frá búðum mannanna. Þá snýr Margrét sér að mér og spyr: "Eru þeir núna að sjóða mömmu hans?"

Mér þótti nú alveg nóg um þetta kaldlyndi.

Ég rifjaði þessa sögu upp á dögunum. Þá sagði Magga systir mér sögu af Eddu dóttur sinni. Hún var á svipuðu reki og systurnar þegar mamma hennar bar svið á borð. Edda spurði hvað þetta væri og Magga sagði að þetta væru lambahausar.

Þá spurði Edda, með ósvikinni aðdáun: "Vá, mamma, sástu bara lömb og skertirðu hausana af þeim?"

Þetta kaldlyndi er ekki bundið við systurnar í Logalandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst Margrét bara stórfyndin :)

Óli (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 20:00

2 Smámynd: Sigþóra Guðmundsdóttir

 hahaha vá, mamma!!!!

Sigþóra Guðmundsdóttir, 22.10.2007 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband