Skuldin

Magga systir getur verið óskaplega seinheppin stundum, en sem betur fer hlær enginn meira að því en hún Wink

Hún skrifaði blaðapistil í sumar um sjálfsafgreiðslu, hvernig fólk á nú að afgreiða sig sjálft á bensínstöðvum, sjá um bankamál á netinu, bóka flug á netinu og, síðast en ekki síst, að afgreiða sig sjálft á bókasöfnum. Þar finnur fólk bækurnar sjálft, fer með þær að skanna, sér um að afgreiða þær út og sami prósess endurtekur sig þegar þeim er skilað. Nema hvað enn sem komið er þarf fólk ekki að setja þær á sinn stað.

Magga fann þessu svosem ekki allt til foráttu, en sagði að sér þætti nú þægilegra að fá meiri þjónustu í bókasafninu og einhverjar áhyggjur hafði hún af því að þetta gæti vafist fyrir eldra fólki, En auðvitað er starfsfólk alltaf boðið og búið að hjálpa.

Nema hvað, að þessum formála sögðum: Magga hefur notað hvert tækifæri til að grínast eitthvað í starfsfólki Borgarbókasafnsins út af þessu fyrirkomulagi. Á dögunum fékk hún senda tilkynningu um að hún hefði ekki skilað tímariti, sem hún kannaðist reyndar ekki við að hafa afgreitt sig með. En leitaði samt dyrum og dyngjum heima hjá sér. Árangurslaust. Hún fór því á bókasafnið til að borga skuldina, því ekkert fannst tímaritið.

Og nú var hún komin með enn eitt tilefnið til að grínast með sjálfsafgreiðsluna. Fyrst hún átti að finna bækur, skanna inn bækur og sjá um þetta allt saman, hvers vegna þá ekki líka að sjá um þetta alla leið? Hún sagði því hátt og snjallt við starfsmanninn, að hér væri hún komin með bækur, sem hún ætlaði að skanna inn og skila og svo væri hún hérna með rukkun út af þessu tímariti og hún hefði tekið þá ákvörðun að fella skuldina niður!

Starfsmaðurinn starði á hana í forundran. Um leið og Magga sleppti orðinu áttaði hún sig á að þessi starfsmaður vissi líklega ekkert um þessa endalausu sjálfsafgreiðslubrandara hennar. Hann horfði bara kjaftstopp á hrokafullan forseta borgarstjórnar, en tuldraði svo eitthvað í þá veru að kannski gæti hún tekið ákvörðun um það, já. En virtist aðallega gjörsamlega forviða á framkomunni.

"Nei, nei, þetta var grín, þetta var grín, sko út af sjálfsafgreiðslunni," hrópaði virðulegur forsetinn, ekki svo virðulega, og fór að útskýra brandarann.

 Allir vita hins vegar hversu vonlaust það er að útskýra brandara.

Ég sagði henni að hún yrði að færa viðskipti sín annað. Hún missti æruna í Borgarbókasafninu LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

ARG, mátulegt á "forsetann".  Nú hló ég upphátt

Jenný Anna Baldursdóttir, 23.10.2007 kl. 12:11

2 identicon

Heima hjá mér heitir þetta að stappa í spínatinu

vinkona tantanna (IP-tala skráð) 23.10.2007 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband