24.10.2007 | 12:52
Fullur heili
Systur vilja fremur ræða um allt sem þær eiga eftir að læra en það sem þær eru búnar að læra.
Í gærkvöldi, þegar þær voru búnar að borða kvöldmatinn, byrjaði Margrét: "Ég held ég geti ekki verið í skóla, af því að ég veit ekki nógu mikið."
Við sannfærðum hana um að skólarnir væru nú einmitt til að uppfræða hana, svo hún þyrfti engar áhyggjur að hafa af þessu.
"Já, en ég veit samt ekki margt sem ég á að vita," sagði Margrét og vísaði í bók sem hún hafði verið að skoða. "Jörðin var skorin í sundur og það var eitthvað appelsínugult innan í henni."
Mæður lögðu saman í lærðan jarðfræðifyrirlestur. Sem dugði skammt, af því að þá sneri hún sér að öðru: "Hvernig eru ljósaperur búnar til? Af hverju eru engar risaeðlur lengur? Hvernig smíðar maður regnhlíf?"
Úff.
Hún fór afskaplega vítt og breitt yfir og systir hennar studdi hana dyggilega. Sumt af því, sem við mæður reyndum að útskýra, vissu þær nú alveg. Elísabet hneykslaðist óskaplega á óþarfa upplýsingum: "Það vita nú allir af hverju regnboginn kemur og það vita nú allir að það er ekki nógu heitur sjórinn hérna við Ísland til að stóru hákarlarnir vilji vera í honum," sagði hún, en það skal tekið fram að mæður voru ekki með neinar yfirlýsingar um hitastig sjávar og hákarla, þótt þær hefðu reynt að rifja upp einhver regnbogavísindi.
Allt í einu baðst Margrét vægðar: "Heilinn minn er alveg að verða fullur," sagði hún.
10 mínútum síðar, þegar hún var búin að bursta tennur og komin upp í rúm, vildi hún vita meira. Allt um krókódíla, snjókomu, sjónvörp og fugla, takk.
Kata var að knúsa Elísabetu, svo ég sat ein undir þessum ósköpum. Og varð að biðjast vægðar. Ég ætlaði að nota sama ráð og Margrét og vísa í að heilinn minn þyldi ekki meira.
"Af hverju ekki? Þú ert ekkert að fylla hann, þú ert að taka úr honum," sagði litli fróðleiksmolinn, en sættist loks á að fara að sofa.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú skalt ekki halda að þú sleppir svona vel út úr þessu,
bíðið þið bara, þær eiga eftir að setja ykkur á gat endalaust.
Snillingar þessar stelpur.
Kveðja til ykkar.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.10.2007 kl. 18:16
Man ágæta sögu um yngsta barnið mitt. Við vorum að labba á Húsavík og hann, þá 3ja ára, var búin að spyrja mig um allt og ekkert og ég mamman að verða pínu þreytt á útskýringum, þá segir guttinn, "mamma afhverju er sjórinn þarna" og bendir út á haf, ég svara eftir smáhugsun " æ, hann er bara þarna og hefur alltaf verið" hann hugsar sig um smástund og segir svo "nei mamma, hann er þarna til að skipin og bátarnir geti siglt á honum" þetta fannst mér skemmtilegt svar. Þið eigið greinilega gullmola og það er gaman að fá að fylgjast með þrokskasögum þeirra.
Ásdís Sigurðardóttir, 25.10.2007 kl. 01:47
Já, maður kemst nú ekkert upp með einhver óljós svör
Ragnhildur Sverrisdóttir, 25.10.2007 kl. 10:38
Rosalega klárar þessar stelpur. Ég sit alltaf skælbrosandi við tölvuna þegar ég les um þessa snillinga þína.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 25.10.2007 kl. 22:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.