Jólin koma

Systur eru farnar að huga að jólum. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.

Í morgun ræddu þær fram og til baka um hvernig þær ætluðu að skreyta kofann sinn í garðinum. Þær ætla auðvitað að hafa jólaseríu á þakskegginu og svo þarf alveg helling af jólaskrauti inn í kofann.

Þær hafa líka skoðun á því hvernig skreyta eigi húsið. Vissulega vilja þær hafa marglitar seríur á þakskegginu framan á húsinu og á svölunum og þeim fannst fínt að hafa upplýst jólatré við dyrnar. En það er auðvitað alls ekki nóg. Þær vilja hafa upplýstan jólasvein, sem er að klifra upp á svalirnar og helst á hann að vera í stiga sem nær alveg niður í garð, svo þær geti líka klifrað upp og niður. Lofthrædda ég sagði að það myndi ekki ganga, ég vildi ekki að þær væru að klifra upp á svalir. "Við getum bara haft dýnu á jörðinni, svo við meiðum okkur ekki ef við dettum," sagði Elísabet, en ég haggaðist ekki.

Þær vilja ólmar hafa jólasvein í sleða með átta hreindýrum uppi á þaki. Frábær hugmynd sosum, en sú lofthrædda sló hana út af borðinu.

Margrét hugsaði sig lengi um og fann svo lausnina: Jólasveinninn, sem væri að klifra upp á svalir, gæti skilið tóma sleðann sinn eftir að þakinu á kofanum þeirra. Meira að segja ég hlyti að þora að fara upp á þakið á kofanum. Við sjáum nú til með það.

Mamma þeirra sló algjörlega í gegn með því að lofa þeim piparkökubakstri í kofanum. Í honum er nefnilega rafmagn og af því að við eigum lítinn ofn þá er hægur vandi að baka þar nokkrar kökur og skreyta þær.

Eftir allar þessar jólaumræður urðum við að fara í Blómaval og skoða jólasveinalandið þar og allt skrautið. Þær áttu ekki til orð yfir dásemdunum.

50 dagar til jóla.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Er ekki maðurinn með skreytingarmaníuna rétt hjá ykkur?  Mamma og pabbi búa í Fossvogi og þess vegna hef ég ekki komist hjá því að sjá húsaskreytinguNA.  Ekki hagstæður samanburður þegar á að fara að útiskreyta.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.11.2007 kl. 23:33

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég lofa því hér með hátíðlega að Logalandið verður ekki skreytt svo mikið að fólk fari að gera sér sérstaka ferð í sunnudagsbíltúra hingað. EF skreytingarnar fara út böndunum -og ég segi bara EF- þá verður sú ofskreyting bundin við garðinn, sem sést ekki frá götunni

Ragnhildur Sverrisdóttir, 5.11.2007 kl. 00:19

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gott, gott, gott.  En ég er á jólavaktinni og nú eru 49 dagar til jóla. Lalalalala

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.11.2007 kl. 00:40

4 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Á mínu heimili byrjuðu systurnar 12 og 14 ára að tala um skóinn! Eins og það þýði að tala um skóinn við MIG! Vildu að ég semdi við jólasveininn að gefa þeim ekki á hverjum degi heldur eitthvað dálítið merkilegra svona tvisvar til þrisvar á "skó tímabilinu"

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 5.11.2007 kl. 07:06

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Djísöss, þær systur kunna sko að semja !

Ragnhildur Sverrisdóttir, 5.11.2007 kl. 21:07

6 identicon

Jólin, jólin, jólin koma brátt.. Já ég er sko farin að hugsa til jólanna eins og prinsessurnar á þínu heimilinu og um þitt dásamlega lifrarpaté sem ekki er hægt að gleyma á milli jólaboða (aðeins verið að leggja inn fyrir jólaboði í ár - just in case).  Kv. Olla.

Ólöf Marín Úlfarsdóttir (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 14:14

7 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Engar áhyggjur Olla, þú færð þitt paté fyrir jólin eins og venjulega. En í þetta sinn kemur kannski engin drossía og flytur þig á brott í miðju partýi

Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.11.2007 kl. 22:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 786278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband