8.11.2007 | 13:45
Rándýr smádýr
Systur eru afskaplega hrifnar af leikföngum sem kallast Littlest Pet Shop. Þetta eru agnarsmá dýr og með þeim fylgir alls konar aukabúnaður. Þær eru þegar búnar að koma sér upp töluverðu safni og fjölbreyttu, enda gæta þær þess að fá aldrei eins pakka.
Hagkaup auglýsir þessi dýr á heilli síðu í Fréttablaðinu í dag. Þar kemur fram að minnsti pakkinn, með einu agnarsmáu dýri og einum fylgihlut, kostar 629 kr. Næsta stærð af pakka hefur tvö dýr að geyma og einhvern fylgihlut að auki: 749 kr. Loks er svo hægt að fá gjafaöskjur með þremur dýrum og fullt af aukahlutum saman í pakka á 2.299 kr.
Efst í auglýsingunni stendur: GERÐU VERÐ- SAMANBURÐ.
Ég ákvað að gera verðsamanburð, en auðvitað hvarflaði ekki að mér að gera hann hér innanlands, þar sem fastlega má reikna með að skeiki bara einni krónu frá einni verslun til annarrar, í okkar ofboðslega hörðu samkeppni.
Í Bandaríkjunum er hægt að fá tvö dýr með aukahlut á 270 krónur. Hérna er ódýrasta útgáfan eitt dýr á 629 krónur.
Í Bandaríkjunum er hægt að fá gjafaöskju með fimm dýrum og fullt af aukahlutum á 959 krónur. Hérna kostar þriggja dýra gjafaaskjan 2.299.
Hagkaup auglýsir líka "Flypaper", myndir af þessum gæludýrum sem festast við slétta veggi og gler og hægt er að taka þær niður og setja upp aftur og aftur.
Hagkaup selur þessar myndir á 1.799 krónur.
Að áeggjan Hagkaups gerði ég enn og aftur verðsamanburð: Þessar myndir kosta 780 krónur út úr búð í Bandaríkjunum.
Og rúsínan í pylsuendanum: Hagkaup auglýsir að vísu ekki í Fréttablaðinu stærsta Pet Shop dótið, sem er eins konar leikskóli og útstillingarhús fyrir litlu dýrin. Ég sá svoleiðis hins vegar í verslun hér á landi um daginn og dæturnar ætluðu alveg að missa sig af hrifningu. Ég leit á verðmiðann á þessu harðplastdóti, fölnaði og dró þær í burtu.
Ef þær fá slíkt dót þá verður það ekki keypt hér á landi á 7.990 krónur. Ég kaupi það frekar þegar ég fer til London á 3.700 krónur. Og finnst alveg nóg um það verð.
Að lokum vil ég færa Hagkaup bestu þakkir fyrir að hvetja mig til verðsamanburðar. Það á eftir að koma sér vel fyrir jólin.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Á mínu heimili kallast þetta fyrirbæri hristihausar. Svo fæ ég líka hálfgerðan hristihausverk af þessum verðsamanburði.
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 8.11.2007 kl. 14:12
Já það er mikill verðmunur á þessu dóti sem öðru manni blöskrar
algjörlega, það er nú kannski ekkert skrítið þótt fólk kaupi
í útlöndum.Eru þær að safna einhverju fleiru þessar dömur ykkar
Guð hjálpi ykkur ef svo er eða verður.
Heima hjá dóttur minni er full geimsla af kössum, í þeim er það
sem ekki má henda að þeirra mati, en að okkar mati, móðir og ömmu
má helmingurinn fara strax, en ekki hlustað á okkur að
sjálfsögðu ekki. það er nú gott að vera nýtin,en þetta er of mikið.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.11.2007 kl. 14:26
Til allrar hamingju eru þær nú ekki að safna neinu öðru. Mér finnst alveg nóg um þessa söfnun þeirra og gæti þess vel að reyna ekki að leggja saman verðmæti "hristihausanna" þegar ég lít yfir hillurnar. En þetta er svo sannarlega skárra dót en margt annað, bara krúttleg dýr.
Ég reikna nú með að þetta fari niður í kassa eftir einhver ár og þá myndi ég gjarnan vilja geyma þá, rétt eins og við geymum hin og þessi uppáhaldsföt þeirra, þótt restin fari öll annað. Kannski er bara ímyndun að næsta kynslóð á eftir þeim hafi eitthvað gaman af þessu, en það verður þá bara að koma í ljós.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 8.11.2007 kl. 14:31
Mínar söfnuðu Pony hestum og ég var ánægð með það. Þær gætu dúllað og greitt og klætt og kysst og gift og gert allt mögulegt við þessi dýr. Ég var mjög fegin að þetta voru ekki dúkkudruslur sem áttu að vera prúðar og stilltar. Þessir ponyar (ég sagði reyndar alltaf hestar við þær) eru nú upp í bústað. Þær léku sér með þá lon og don í heita pottinum þegar þær voru yngri - löngu eftir að þær voru orðnar leiðar á þeim á herbergisgólfinu. Þeir fengu semsagt nýtt líf þegar þeir komust í vatn!
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 8.11.2007 kl. 14:52
Einhver auli sagði einhvertímann að það væri dýrt að vera Íslendingur og að það væri vel borgandi fyrir það (hristihaus), ég hef engan hitt ennþá sem tekur undir það. Rán og aftur rán segi ég og meinaða.
Jenný Anna Baldursdóttir, 8.11.2007 kl. 15:46
Jarðgöng til Evrópu, takk.
hke (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 17:23
Það nægir sem sagt ekki að fá ToysRus til Íslands til þess að skapa almennilega samkeppni - alltaf sama sagan. Þetta eru allt saman tómar blekkingar. Það endar alltaf með því að græðgin tekur völdin hjá þeim sem ætla að herja á markaðinn með látum og lágu verði. Þetta er bara það sem er alltaf að gerast - matvörumarkaðurinn - bensínbransinn og nú leikföngin. Það er með ólíkindum að almenningur skuli sætta sig við þetta. Hvar er samstaðan í þessu þjóðfélagi?
Olla illa
Olla (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 19:32
Já Ragnhildur. Það er dýrt að vera íslendingur og þá ekki síst dýrt þegar maður er ungabarn, barn eða unglingur. Blessunarlega þurfa börnin ekki að borga en það þurfta víst blessaðir foreldrarnir að gera og mér hefur iðulega blöskrað verðlagningin á barnafatnaði, leikföngum og öðru slíku. Þeir vita það fyrir víst þeir sem reka þessar okurbúlur að þetta verður keypt hversu hátt sem þeir verðleggja það. Gott hjá þér að gera þennan verðsamanburð og vekja athygli á honum. Mættir gjarnan reyna að fara með þetta eitthvað lengra eins og í fjölmiðla ef hægt væri.
kær kveðja Eggert
Eggert Vébjörnsson (IP-tala skráð) 9.11.2007 kl. 00:14
Ég er búin að fá mig fullsadda af okrinu, sem viðgengst svo víða hérna. Það er t.d. alveg á hreinu að ég fer frekar til Köben og kaupi barnafötin þar á smápeninga í H&M, en að versla á þær systur hér á landi. Það er miklu ódýrara, þrátt fyrir flugfarið og gistingu. Jafnvel þótt maður kæmi út á sléttu, miðað við innkaup hér, þá fær maður ljúfa borgarferð í bónus. Ég læt bara ekki bjóða mér að borga margfalt á við það sem gerist annars staðar. Jafnvel þótt ég vissi ekki aura minna tal gæti ég ekki hugsað mér að láta svína svona á mér.
Olla, ég deili þess vegna illsku þinni í þessu máli. Dagný, það er ágætt að fá upplýsingar um að Toys'R'Us í Danmörku sé 10-20% ódýrari. En hvers vegna ætti verðið á leikföngum að vera 10-20% hærra hér en þar?
Ég var einu sinni að velta fyrir mér að kaupa gólflampa, sem var væntanlegur í Epal. Ég spurði hvað hann myndi kosta og var þá sagt að líklega yrði hann á um 80 þúsund krónur. Mér fannst það ansi ríflegt. Næst þegar ég fór til Danmerkur kannaði ég hvað hann kostaði þar, í Illums. Þar var hann á rúmar 70 þúsund krónur. Gott og vel, ekki svo mikill munur, hugsaði ég með mér. En þegar lampinn loks kom í Epal, þá reyndist ágiskun afgreiðslumannsins fjarri lagi. Hann kostaði 120 þúsund krónur!! Er einhver hugsanleg skýring á þessum verðmun, önnur er óhófleg álagning? Ég myndi aldrei kaupa hann á þessum prís, þótt ég ynni stóra pottinn í Víkingalottóinu þrisvar í röð. Það verða að vera einhver takmörk fyrir vitleysunni!
Elísabet, skjaldbökurnar í gamla daga voru ekki á sterum
Frábær skilaboð til barnanna að þær skuli núna vera massaðri 
Ragnhildur Sverrisdóttir, 9.11.2007 kl. 09:40
Staðgreiða í Epal og biðja um afslátt, stelpur! Þar af leiðandi fékk ég stól þar á 190.000 kr. sem átti að kosta 230.000 kr. Hittumst síðan bara í Köben, er einmitt á leiðinni þangað. Áhrifin sem ég varð fyrir þegar ég las jólabjörgunarpistilinn þinn í fyrra hafa enn ekki rjátlast af mér, Ragnhildur.
Gerður (IP-tala skráð) 9.11.2007 kl. 10:03
Hehehe, gott að "jólabjörgunarpistillinn" er þér enn í fersku minni. Ég verð alltaf jafn mikið upp með mér að eiga slíkan pistlaaðdáanda, það var ekki nóg með að þetta birtist í Mogga, heldur líka í endursögn þinni í Fréttablaðinu
Ætlarðu kannski að fara á Litla Apótekið í jólamat? Það er alveg himnesk aðventu-dásemd.
Ég var einmitt að lesa um nýju bókina þína, klárt að hún verður lesin fyrir dæturnar þessi jól (sem þýðir að ÉG vil lesa hana og er svo ljónheppin að hafa þær tvær sem afsökun fyrir öllum barnabókarlestri). Hlakka verulega til að sjá hvernig þú hanterar forsetann, leiðindin í starfinu og stuðið á Bessastöðum
Ragnhildur Sverrisdóttir, 9.11.2007 kl. 10:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.