U er undurfríð Una

U er stafur vikunnar.

Margrét byrjaði, rösk að vanda. Hún var afskaplega fljót að skrifa stórt U og lítið u.

Svo hófust myndskreytingar. Fyrsta myndin var af afskaplega fínni stúlku: Undurfríð.

Sú næsta var með tveimur U-um: Hundur.

Þriðja myndin kostaði allnokkrar tilfæringar. Margrét er fremur nákvæm stúlka, svo það tók dálítinn tíma fyrir hana að rifja upp hvernig leiðin í Umferðarspilinu er. Það er uppáhalds spilið þessa dagana og þær systur ýlfra af hamingju og Þórðargleði þegar mæðurnar fara flatt á einhverri umferðarreglunni og færast marga reiti aftur á bak: Umferðarspilið.

Fjórða myndin var mjög fljótgerð, enda eins gott enda hafði litli sjónvarpssjúklingurinn uppgötvað að barnatíminn var að byrja. Margrét leit til hliðar á diskinn sem ég setti á borðið, skellti svo nokkrum brúnum klessum á blaðið og skrifaði undir: Piparkökur.

Elísabet fór svipaða leið og systir hennar í fyrstu myndinni, nema hvað fína stúlkan á fyrstu myndinni var ekki einhver óskilgreind, heldur náfrænka hennar: Una.

Hún byrjaði að teikna mynd nr. 2 af miklum áhuga og neitaði að segja mér hvað þetta ætti að verða, en sór og sárt við lagði að orðið byrjaði á U. Hún teiknaði hönd sem hélt á blaði og á blaðinu var fín mynd af húsi, tré og sól. Undir blaðinu lá blýantur. Undir.

Þriðja myndin var af stelpu að kalla á hundinn sinn: Komdu, hundsi!

Loks teiknaði hún mynd af stóru húsi. Við hlið þess var reistur stigi. Miðja vegu í stiganum var einhver örvera að príla og á þakinu sat einhver önnur vera. Uppi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Hahaha þessir stafapistlar eru að verða mesta uppáhalds lesefnið mitt á blogginu, það er svo gaman að lesa hvað þær teikna og finna út. Mér finnst þær rosa klárar...

Ragnheiður , 9.11.2007 kl. 13:54

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ekki mómæli ég því

Ragnhildur Sverrisdóttir, 9.11.2007 kl. 14:05

3 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Og gleður mitt hjarta sem slær með litlu krílunum í umferðinni að þið skuluð spila spilið góða.....þetta er splunkuný útfærsla á spilinu því okkur langaði að hafa Matthildi, Dodda og innipúkann með í fjörinu. Þær systur eru í fyrsta árgangnum sem fær bækurnar og spilið - og nýja bæklinginn sem þið mæður fenguð í haust..

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 9.11.2007 kl. 14:53

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Við erum alsælar með spilið. Og þær systur fara líka oft inn á us.is og spila umferðarspilið þar. Það er alveg frábært.

Þær höfðu töluverðar áhyggjur þegar þær fengu lokabókina um krakkana í Kátugötu. Ég sagði þeim að þetta væri síðasta bókin og kæmu ekki fleiri og þær misskildu þetta, héldu að yngri börn myndu ekki fá neinar bækur og höfðu af þessu töluverðar áhyggjur. Mér tókst loks að fá þær til að skilja hugtakið "endurútgáfa" og fullvissaði þær um að önnur börn myndu fá þessar bækur, ("nei, nei, rólegar, ekki ÞESSAR bækur, heldur EINS bækur). Sjúkk

Ragnhildur Sverrisdóttir, 9.11.2007 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 786278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband