9.11.2007 | 23:15
Vertu ekki að plata mig
Systur heyrðu gamla, góða HLH- og Siggu Beinteins-lagið "Vertu ekki að plata mig" í bílnum um daginn. Og urðu yfir sig hrifnar. Nú er staðan orðin sú að mæður reyna að aka sem allra, allra minnst með þær systur, því lengri túrar kalla á 8-10 umferðir af þessu eðal-lagi. Þetta æði hefur staðið í rúma viku og þótt lagið sé allra góðra gjalda vert, af og til, einstaka sinnum, þá er þetta ekki á nokkurn mann leggjandi.
Þær þurftu að fá skýringar við textann. Hver var þessi Brenda Lee, sem Sigga minnti Bjögga svona á? Og hvað var hann eiginlega að gera þegar hann "skellti krónu í djúkboxið og hækkaði vel í því?"
Þegar allur textinn var kominn á hreint hlustuðu þær nokkrum sinnum og rauluðu með. Sigga þagði bara og lakkaði á sér neglurnar og þóttist ekki taka eftir Bjögga, sem gekk að borðinu hennar og sagði hátt: "Komdu með....." o.s.frv.
Svo fóru þær að tjá sig um stöðu mála hjá Bjögga og Siggu.
"Mér finnst bara gott hjá Siggu að fara ekki með honum, af því að hún þekkir hann ekki neitt," sagði Elísabet, sem myndi aldrei umgangast ókunnugt fólk með engum fyrirvara.
Margrét var innilega sammála. Og hneyksluð á Bjögga: "Já, hann gekk bara að borðinu þótt hann þekkti hana ekki neitt og sagði þetta HÁTT!" sagði hún og var alveg að rifna úr vandlætingu.
Svona ruddahegðun virkar sko ekki á dömur
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
he he góðar.......hey ég les oft bloggið hjá þér en er ekki nógu duglegur að kvitta.......en þið eruð eðal foreldrar......
Einar Bragi Bragason., 10.11.2007 kl. 01:53
Bíddu bara Ragnhildur mín þegar þær fara að hverfa undir borð eða á bak við sófa þegar þær sjá kossaflangs í bíómyndum. Jesús minn, man eftir þessu hjá öllum mínum þremur og hjá skábörnunum einnig. Það sem þau líða þessar elskur.
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.11.2007 kl. 02:23
Takk fyrir kveðjuna, Einar Bragi
Jenný, þær eru þegar farnar að sýna sterk viðbrögð við því sem þær dæma sérstaklega hallærislegt. Elísabet er þó verri, hún er afskaplega meðvituð um umhverfi sitt og telur mæður stundum ekki nógu tillitssamar. Þegar Kata ólmaðist í sundi hvæsti Elísabet á hana: "Viltu að fólk sjái þig svona?!" Og þegar við erum að hlusta hátt á útvarpið í bílnum spyr hún reglulega hvort fólk fyrir utan bílinn heyri þetta nokkuð. Kossaflens á örugglega eftir að ganga alveg frá henni
Ragnhildur Sverrisdóttir, 10.11.2007 kl. 10:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.