Soltin eins og kæfa

Systur voru að horfa á barnatímann þegar við Kata fengum okkur kaffi og ristað brauð í morgun. Þær ætluðu að fá morgunmatinn aaaaaðeins seinna, svo þær misstu ekki af spennandi þætti. Við Kata vorum sáttar við að ná rólegri stund við morgunverðarborðið áður en hún rauk af stað í vinnuna.

Við vorum varla sestar niður þegar Elísabet birtist, glorhungruð. Hún mændi á brauðsneiðina mína, sem ég hafði bitið eitt hornið af. Ég rétti henni sneiðina og þá spurði hún hinnar eilífu tvíburaspurningar: "Hvað með Margréti?" Kata rétti henni ósnerta brauðsneiðina sína fyrir Margréti og hún skoppaði alsæl aftur niður í sjónvarpshol.

Örskömmu síðar hófust mikil ramakvein að neðan, því þær voru svo agalega svangar. Ég ristaði brauð, eina og hálfa sneið á mann, og skar niður stóran banana. Aftur fengu þær að borða við sjónvarpið, sem er toppurinn á tilverunni á laugardagsmorgni.

Ég hellti kalda kaffinu mínu og fékk mér nýtt. Eftir fyrsta sopann hófust enn hróp að neðan. "Ég VERÐ að fá eitthvað. Ég er soltin eins og kæfa!" hrópaði Elísabet og greinilega bara mínútuspursmál hvenær blessað barnið færist úr hungri.

Auðvitað helltist yfir mig samviskubit. Þarna sat ég, að súpa á kaffibolla, á meðan dóttirin var "soltin eins og kæfa" á neðri hæðinni. Það hlaut að vera skelfilega líðan.

Í þetta sinn ristaði ég tvær sneiðar á mann og skar niður stórt epli. Þær voru lukkulegar og fóru að tína þetta upp í sig fyrir framan sjónvarpið. Svei mér þá, þetta virtist ætla að duga.

Rétt í þessu spurði ég þær hvort þær væru nú orðnar saddar. "Já," sagði Elísabet, "en getum við farið í bröns á kaffihúsi á eftir?"

Soltin eins og kæfa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ef svona frásagnir koma manni ekki til að hlæja, þá gerir ekkert það.

Ég er soltin eins og kæfa.!

Þær voru orðnar saddar, en vildu samt fara á kaffihús í Bröns.

Frábærar.!

Þetta með að safna dóti, Sko mínar geima, alla pes-karla, alt smádót innan úr

kinder egg, skeljar, ígulker og fl. tengt fjörunni, svo ég tali nú ekki um,

Barbý, Brats, Poný, Silvanía dótið eins og það leggur sig, það er lítil bangsa fjölskylda,

afar falleg leikföng og ég gæti örugglega talið fleira.

Mamma þeirra geymir öll föt og lín. það besta við þetta er að þær hafa ekki

svo mikið leikið sér við þetta dót. Þær eiga td. fleiri hundruð bækur og hafa altaf lesið mikið.

Og skapað, þegar þær voru hjá mér, sem var á hverjum degi eftir skóla,

þá fengu þær eina dúkku hvor síðan áttu þær að skapa heim utan um þær,

höfðu að sjálfsögðu ótakmarkaðann aðgang að mínum föndurskáp með efnum og

allskonar dóti. Æ ég er hætt þessari ræðu. Eins og þið mæður lesið,

get ég talað endalaust um börnin.

um börnin.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 10.11.2007 kl. 11:15

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Alltaf sömu krúttlegheitin hér - ef maður vill í krúttakast (ala Jenný)þá er bara að fara síðuna þína!

Edda Agnarsdóttir, 10.11.2007 kl. 16:01

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Það er sko ekkert mál að tala endalaust um börnin, Milla

Þær systur eru búnar að vera í endalausu krúttformi í dag og ekkert lát þar á. Ég get næstum lofað öðru krúttkasti a la Jenný fljótlega.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 10.11.2007 kl. 16:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 786278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband