12.11.2007 | 00:50
Eggið og hænan
Í dag fórum við saman á bíó, ég og stelpurnar, á meðan Kata sat heima og las handritið að bókinni minni - og ekki seinna vænna, því ég skila henni af mér á morgun og hún á að koma út fyrir jól!
Stelpurnar voru kátar í bíó, en Elísabet kvartaði að vísu undan hávaða. Og hávaðinn var nánast óbærilegur. Ég veit að það er voða töff að vera með öflugt THX kerfi eða hvað þetta nú heitir, en þegar áhorfendur eru flestir 3-8 ára þá er þetta kannski ekkert sniðugt?
Við borðuðum svið í kvöld, sem afi Ís færði okkur í vikunni. Þær voru alsælar og óþarflega áhugasamar um þessa kindahausa, hvað væri nú hvað og hvort tungan væri ógeðsleg eða ekki. Elísabet ánægð með rófustöppuna, sem Margrét leit ekki við, en báðar þokkalega sáttar við kartöflumúsina. Afskaplega þjóðleg kvöldstund hjá okkur.
Elísabet æfði sig aðeins á gítarinn og ég spilaði með á gítarinn hennar Margrétar. Elísabet var nú ekkert sérstaklega hrifin af tilþifum mínum og sagði að ég væri allt of lengi að skipta úr D í G. Ég beygði mig að henni, horfði í augun á henni og sagði alvarlega: "Er nú eggið farið að kenna hænunni?"
Ég reiknaði nú ekkert með að hún myndi skilja þetta, en hún hugsaði sig um örstutta stund og skaut svo til baka: "Þótt hænan eigi kannski að kenna egginu, þá má nú eggið alveg segja það sem það vill!"
Hún VERÐUR að eiga síðasta orðið. Alltaf.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Elísabet er og verður greinilega í góðum málum. Það hefur aldrei verið slæmt fyrir konu að hafa munninn fyrir neðan nefið, kannski ekki alltaf þægilegt en alltaf gott fyrir sjálfsvirðinguna. Til hamingju með skeleggar dætur þínar kona.
P.s. Hvaða bók, hví veit ég ekkert um bók, ég sem hélt að ég fylgdist með mínum bloggvinkonum? Hm...ég hefði getað skúbbað
Jenný Anna Baldursdóttir, 12.11.2007 kl. 00:56
Ég hef engum sagt frá þessu, svo þú fréttir þetta fyrst, eins og allt annað.
Segi samt ekki meira í bili
Ragnhildur Sverrisdóttir, 12.11.2007 kl. 00:59
Já ég er rooooooosalega forvitin um bókina þína - tell everything!
Þetta með svið - það voru svo sannarlega svið á mínu bernskuheimili og ég freistast stundum til að kaupa sviðasultu. Svo býr mamma til ómótstæðilega góða sultu - nú fæ ég vatn í munninn.
Sú yngir nefndi einmitt um daginn að hana langið "í svona haus af kind"
Vissi ekki að svið heita svið. Það fannst mér slæmt.....
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 12.11.2007 kl. 07:08
Sæl Ragnhildur,
ég er ókunnug kona hér í borg sem hef yndi af því að lesa skrifin þín þar sem þau eru svo einkar skemmtileg og skondin! Ég vona að þér finnist ekkert óþægilegt að vita af kerlingum "út í bæ" að lesa um heimilislífið, en ég vona ð ég megi halda áfram - þetta er orðinn fastur punktur í tilveru minni á netrúnti.
Af skrifum þínum að dæma eru dætur ykkar Kötu yndislegar, og kunna sannarlega að mæla hið íslenska mál þegar þess er þörf!
Takk :)
Harpa (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 20:18
Sæl Harpa.
Ég hef ekkert á móti því að vinsamlegar, ókunnar konur hér í borg lesi bloggið mitt
Sjálf hef ég gaman af að skrifa um stelpurnar og hvaða mamma verður ekki bara rígmontin ef aðrir nenna að lesa sögur af börnunum?
Velkomin á næsta bloggrúnti.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 12.11.2007 kl. 22:42
Þjóðlegt? A la Rsv? Fer nú um mig notalegur vestfirskur hákarlshrollur. Mmmmm. Og hafa síðasta orðið ... ég bara skil ekki hvaðan það er komið. Sagðirðu, guuuubbb?
PS. Slæst þú ekki um bjölluræsknið næsta föstudagskvöld? Muna rúlluskóna. Dayum, hvað ég verð límd við sófakartöflusófann. Popp og kók, hattar og knöll.
hke (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 00:34
Ég mun senda liðsfélaga minn á bjölluna næsta föstudagskvöld. Ég þrái ekkert sérstaklega að þeytast á hana sjálf, merkilegt nokk. Mér þykir leitt að valda þér vonbrigðum, mín kæra, en vona að þú hafir samt hina bestu skemmtan af.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.11.2007 kl. 12:47
Já, þurrlegu tilsvörin munu verma mitt freðna hjarta. Jú bett.
Og barnið verður lamað af aðdáun...
PS. Rosaleg'er'essar samlaggningaræingar erviðar héddna sko.
hke (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 13:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.