12.11.2007 | 11:03
Andrés
Margrét er heima hjá mér í dag. Hún er búin að vera með leiðindahósta undanfarið og nær ekki að hrista þetta af sér. Í dag ætlum við að slaka á og reyna að klára dæmið.
Hún er alsæl. Ég fór með Elísabetu í skólann klukkan 8 og þá kúrði Margrét í stóra rúminu. Þegar ég kom heim fór Kata í vinnuna. Ég ætlaði að skríða upp í, en Margrét ákvað þá að nóg væri komið af hangsi, settist fram með Andrés-möppu og las af miklum móð. Fljótlega vildi hún fá að horfa á mynd og fyrir valinu varð hin stórskrítna og skemmtilega franska teiknimynd Flóðið mikla. Ég svaf hana næstum alla af mér í sófanum, en Margrét ýtti við mér af og til, svo ég missti ekki af flottustu atriðunum.
Nú hrópar hún og kallar, vopnuð Andrés-möppunni enn á ný. Núna nennir hún ekki að skoða hana upp á eigin spýtur.
Gisp! Úakk! Gasp!
Ég er farin að lesa Andrés.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hósti er leiðinlegur til lengdar, sér í lagi ef að heldur fyrir manni (og öðrum í húsinu) vöku á nóttunni
Hér eru nokkur ráð til að hjálpa við að losna úr viðjum geltsins - það fyrsta er kannski meira svona fullorðins þú veist, krökkum finnst það ekki það besta í heimi en..... sumum kannski - ykkar eru nú næstum alveg að verða fullorðnar finnst mér nú oft á tilsvörum og að vera tilbúnar að borða svið hmm.... já eiginlega ORÐNAR fullorðnar
Blandið saman
½ bolla af eplaediki og
½ bolla af vatni,
1 teskeið af cayenne pipar og
4 teskeiðum af hreinu, hráu hunangi.
Eða
Hitið í ofni sítrónu eða lauk (þar til að opnast)
Setjið 1 teskeið af heitum sítrónusafa eða heitum lauksafa og blandið við
½ teskeið af hreinu, hráu hunangi.
Takið þetta inn á hálftíma fresti og hóstinn hverfur.
Svo er líka tilvalið að skera ca. 1-2 cm af engiferrót og sjóða í vatni í u.þ.b. 10-15 mínútur og drekka svo sem te.
Bragðbætt með sítrónusafa og hreinu, hráu hunangi.
Sakar ekki að prófa
Vonandi nær hún sér sem fyrst.
Kveðja frá Þýskalandi
Guðný Ósk (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 13:31
Takk fyrir, Guðný Ósk. Margrét er að vísu óðum að jafna sig, en hins vegar hef ég tekið við af henni, svo ég nýti mér þetta
Ragnhildur Sverrisdóttir, 12.11.2007 kl. 14:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.