13.11.2007 | 17:26
R
R er stafur vikunnar og systur kláruðu heimalærdóminn áður en þær fóru í afmæli til bekkjarsystur. Fyrst lásu þær og fóru létt með það.
Margrét reið á vaðið með stafablaðið, að vanda. Hún var snögg að draga upp hring, teikna á hann mynd af fiski og tölustafina 001: Króna (o.k. reyndar 100 krónur, eða 001 krónur, en hverjum er ekki sama? Og, ef maður veltir því fyrir sér, þá er 001 auðvitað ein króna. Vá, klár stelpa!)
Næst tilkynnti hún að hún ætlaði að teikna mynd af "róta". Ég sagði ekki eitt einasta orð, sannfærð um að hún myndi leysa málið. Sem hún gerði. Bleikklædd stelpa beygir sig yfir dótakassann, búin að taka bolta upp úr en leitar að einhverju öðru. Rótar.
Þriðja myndin er af þéttum skógi. Í honum miðjum er lítil stelpa, alveg sallaróleg, af því að hún ratar.
Síðasta myndin er eins konar skýringarmynd af stóru, stóru dýri. Píla bendir framan á dýrið. Þar er rani.
Elísabet var mjög snögg að draga upp fyrstu myndina: Rós. Rauð og falleg.
Svo fannst henni auðvitað liggja beint við að teikna uppáhalds Bróður-minn-Ljónshjarta-upplesarann-og-bestu-fóstru: Rósu.
Þriðja myndin er af kátri stelpu að róla.
Þegar Elísbet var komin að fjórðu myndinni sinni var Margrét búin og var að hreykja sér af hversu mörgum R-um hún hefði komið fyrir. Að vísu bara eitt í króna og rani, en tvö bæði í rótar og ratar.
Elísabet toppaði þetta. Hún teiknaði í snarheitum konu og spurði svo hvernig ætti að skrifa Ragnhildur Sverrisdóttir. Sem hún svo gerði og vandaði sig stórkostlega.
Myndin af Ragnhildi Sverrisdóttur er afar áhugaverð. Ragnhildur er með eldrauðar og þykkar varir, af því að svoleiðis eru allar konur sem Elísabet teiknar þessa dagana. Hún horfði líka stíft á eyrnasneplana á mér, en ákvað svo að hunsa fyrirmyndirnar og teiknaði væna eyrnalokka. Hún litaði hins vegar bolinn minn og gallabuxurnar í samræmi við raunverulegan lit.
Ég spurði hana af hverju ég væri með svona stórar hendur á myndinni. "Þú ert að gera svona" sagði hún og breiddi út faðminn. Svo sá hún viðbrögð mín og flýtti sér að skella brosviprum inn á myndina, við rauða, stóra munninn.
Ég var ákaflega upp með mér af þessari mynd af fallegu, brosmildu konunni með útbreiddan faðminn. Aðeins eitt stendur í mér. Ég veit að það eru einhvers konar Bratz-áhrif, þótt þær systur eigi nú ekki slíkar dúkkur: Á milli gallabuxna og bols skín í magann á Ragnhildi Sverrisdóttur, með vandlega teiknaðan nafla á honum miðjum.
Ekki alveg minn stíll.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég veit hvað þú meinar. Og það þarf ekki Bratz til. Svo koma g-strengstilþrifin, er ekki viss um að ég ætli að lýsa því hvernig tradisjonal barnanærbrókum er breytt í þveng, það er hægt með tveimur handtökum. Svo kemur "döh" og "face" og ýmis fjögurra stafa ensk orð með rammíslenskum framburði sem ég ætla heldur ekki að hafa eftir. [andvarp]
Það líður senn að því að ég panti pláss í klaustri eða heimavistarskóla með gratis trúarheilaþvotti. Eiginlega er það fullt starf að passa upp á að þessi grey fái að vera á sínum líffræðilega aldri í friði.
hke (IP-tala skráð) 13.11.2007 kl. 19:00
Ég sá stafapistil og kom æðandi...nei líklega er það ekki þinn stíll. Bert á milli sagði amma gamla og sveiaði...þú færð kvef eða forkelast ! Svo var maður rekinn í að girða ofaní og upp um sig almennilega
Ragnheiður , 13.11.2007 kl. 23:11
Úff, Helga, ég er nú ekkert sérstaklega spennt fyrir þeim töktum sem eru í vændum, g-strengurinn má alveg bíða að eilífu mín vegna, hvað þá aðrir taktar.
Ég er reyndar afskaplega kvefuð þessa dagana, svo það er hægt að forkelast þótt ekki sé bert á milli
Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.11.2007 kl. 23:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.