Tvær tennur

Systur misstu báðar fyrstu tönnina sína í dag. Alla vega voru þetta fyrstu tennurnar sem fóru af sjálfsdáðum og það var mikil upplifun.´

Á síðasta ári þurfti að taka tvær framtennur í efri góm úr Margréti og í þokkabót skera í burtu tvær aukatennur sem leyndust uppi í gómnum. Hún var svæfð, vaknaði miður sín og upplifunin var öll hin versta. Hún hefur hins vegar verið nokkuð stolt af skarðinu sínu.

Tvær framtennur voru dregnar úr neðri góm Elísabetar í sumar. Fullorðinstennurnar voru komnar upp á bakvið þær, en barnatennurnar rótuðu sér ekki. Elísabet var deyfð lítillega og svo fuku þær alveg ótrúlega létt. En hún var leið, af því að hún fékk ekki skarð, fullorðinstennurnar sáu til þess.

Undanfarið hefur Elísabet verið spennt, af því að hægri framtönn uppi var orðin laus. Hún hefur látið okkur rífa í hana af og til, en ekkert gengið. Í kvöld kom dálítið blóð og hún linnti ekki látum fyrr en ég hafði náð tönnina úr. Það var nú reyndar ekki mikil fyrirstaða. Og sú var stolt og glöð!

Margrét bað mig að reyna að ná úr lausu framtönninni í neðri góm á sér. Það gekk ekki. Svo fóru þær inn í rúm að sofa. Margrét kom fram stuttu síðar og sagði að nú væri tönninn enn lausari og hvort ég gæti ekki tekið hana. Í þetta sinn gekk það greiðlega.

Þær systur ætluðu að ærast úr fögnuði. Báðar með fínustu skörð og í þetta sinn var þetta alveg marktækt, tennurnar losnuðu og duttu svo úr, alveg eins og þetta á að gerast LoL

Þær ætluðu aldrei að sofna. "Það er mjöööög skrítið að vera með svona skarð," sagði Margrét, rétt eins og hún hefði ekki verið tannlaus síðasta árið.

"Það er mjöööög skrítið að tala með svona skarð," sagði Elísabet, en dró nú ekkert af sér í málæðinu fremur en fyrri daginn.

Tvö skörð og tvíburahamingja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Magnús Guðjónsson

þekkir ykkur ekki neitt, en las bloggið og fékk maður svona flass back til barnæsku sinnar, en þetta er svo mikil upplifun í lífi sérhvers barns.

kær kveðja, einn lesandi

Páll Magnús Guðjónsson, 14.11.2007 kl. 00:48

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þær eru nottla í átómatísku hópefli, við tannamissir og aðrar uppákomur.  Gott að vera ekki einn í lífsbaráttunni.  Það er fátt krúttlegra en tannlaus börn. GMG KRÚTTKAST!

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.11.2007 kl. 08:49

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ef ég kynni á hina nútímalegu digital myndavél heimilisins, þá væri þegar komin inn mynd af skörðóttum systrum. Bið frúna að redda því fljótlega.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 14.11.2007 kl. 09:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband