Augað

Gærdagurinn leið að kvöldi án þess að Margréti yrði nokkuð ómótt aftur. Við fórum á kaffihús og hún fékk kakó með rjóma, sem var nú endanleg sönnun þess að þetta barn var ekki með neina gubbupest.

Á kaffihúsinu var lítill sjálfsali þar sem hægt var að kaupa súperbolta. Margrét átti 100 kall og keypti einn. Hún varð vonsvikin þegar hún sá boltann, því hann var eins og lítið, blóðhlaupið auga. Svo ógeðslegt fannst henni augað, að hún stakk því í vasann hjá mér þegar við fórum heim.

Í gærkvöldi uppgötvaði Kata að augað ógeðslega lýsir í myrkri! Margréti finnst það mjög kúl, svo líklega mun hún láta sig hafa það að taka á auganu. Hún er ekki norn fyrir ekki neitt.

Við matarborðið í gærkvöldi sagði Kata systrunum að hún hefði hitt Rósu (yfir- bókalesara-og-Rauðudeildar-Idol) í gær. Þær urðu eiginlega báðar dálítið móðgaðar og spurðu samtímis, heldur hvasst: "Er Rósa í vinnunni þinni?" Kata sagðist hafa hitt Rósu á fundi og þær héldu áfram að vera fúlar: "O-o-o-o!" Greinilega óskaplega ósanngjarnt að mamma þeirra fengi að hitta Rósu. En þær tóku enn og aftur af okkur loforð að bráðum færum við í heimsókn á leikskólann, því þótt Rósa sé farin þaðan þá eru þar enn Linda, Guðrún, Gunna og allar hinar. Ég verð að hafa samband og bóka opinbera heimsókn Wizard Það er kannski spurning um að bíða í svosem viku í viðbót, þá verða fleiri tennur farnar. Um leið og þær systur misstu tennur um daginn losnaði um næstu tennur við hliðina.

Ég stríddi þeim á að þetta tannleysi þýddi að þær yrðu bara að fá súpu um jólin. Elísabet panikaði, hún ætlaði sko aldeilis að fá hangikjöt. Margréti fannst þetta ekki eins slæm hugmynd, en spurði hvort hún mætti ekki frá grjónagraut frekar en súpu. Grjónagrautur er í slíku uppáhaldi hjá henni að hún tók sérstaklega fram í gær að hún ætlaði sko að fara í skólann í dag, því boðið yrði upp á grjónagraut í hádeginu.

Í morgun fóru þær systur báðar í skólann. Þegar við komum inn fyrir dyrnar leit starfsmaður á Margréti og spurði: "Er hún alveg búin að jafna sig?"

Ójá, hún er sko búin að jafna sig á því sem ekkert var, krúttið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband