16.11.2007 | 09:31
Útsvar
Í gærkvöldi hitti ég liðsfélaga mína í Útsvarskeppninni. Ég bind satt best að segja miklar vonir við þetta ágæta fólk, Halldór Smárason er Gettu-betur spekingur sem svarar spurningum áður en þær eru bornar upp og Ólína veit allan andsk.....
Mitt hlutverk verður að brosa og vera sæt. Æ, eða leika og fíflast, en það er nú ekki alveg eins sætt. Minni á Útsvar, við Ísfirðingar munum leggja okkur alla fram í kvöld. Ójá, það er alveg á hreinu.
Systur eru spenntar að fylgjast með þessu í sjónvarpinu. Þær skilja nú ekki alveg hugtakið bein útsending og hafa hugsað sér að horfa á þetta með mér. Það verður snúið.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Rosalega er þetta "leim" Ragnhildur, að geta ekki verið á tveim stöðum samtímis. Iss, tertubiti fyrir okkur lengra komnar.
Held með Ísó, engin spurning, þar sem þið Ólína eruð báðar ansi kærar bloggvinkonur mínar. Heja, heja
Jenný Anna Baldursdóttir, 16.11.2007 kl. 11:04
Gangi ykkur vel - ég ætla svo sannarlega að horfa. Og hjarta mitt slær með vestfirðingum enda mamma mín fædd og uppalin í Hnífsdal og þar vann ég í frystihúsinu hjá Dóra Páls (æskuvini mömmu) sumarið 1979....
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 16.11.2007 kl. 11:45
Það var lagið! Gott að eiga góðan stuðning vísan. Viljið þið kannski koma í sjónvarpssal, með borða, húrrahróp og lúðra? Það gæti verið mjöööög hvetjandi.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 16.11.2007 kl. 12:21
Nei nei - föstudagskvöld heima, einn, tveir öllarar og Útsvar - næstum því toppurinn á tilverunni!
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 16.11.2007 kl. 15:00
Áfram Ísó!
Enda hálfur vestfirðingur hér á ferð sem hef eytt flestum sumrum ævinnar inni í Vigur...
Sigríður Hafsteinsdóttir, 16.11.2007 kl. 15:14
Þið stóðuð ykkur með sóma. Til hamingju.
Hlakka til að fylgjast með ykkur næst. Ingibjörg G. GUðmundsdóttir, stoltur Ísfirðingur 
IGG , 16.11.2007 kl. 22:00
Takk
Ég er þegar farin að hlakka til næstu keppni. Þetta var stuð 
Ragnhildur Sverrisdóttir, 16.11.2007 kl. 22:41
Aldrei til Ísafjarðar komið
en mér leið eins og innfæddri. Úje og gaman, gaman. Þið tókuð þetta með hægri og vinstri.
Jenný Anna Baldursdóttir, 16.11.2007 kl. 23:28
Þetta var frábært! Snilldar taktar í leiknum. (Og ekki sveik Princess Di látbragðið inni á milli.) Tókst þig vel út að vanda.
hke (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 23:46
Til hamingju! Þetta var glæsileg frammistaða. Ég er Vestfirðingur í báðar ættir og var stolt af ykkur.
Lára Hanna Einarsdóttir, 16.11.2007 kl. 23:56
Híhí, þetta var nú aldeilis flott hjá ykkur, þið tókuð þau hin í bakaríið... mikið eruð þið vel gefin. Á maður annars að vita allt þetta um lengdar- og breyddargráðurnar? Og þarna þennan nossara? Ja þá væri ég nú ekki í góðum málum í svona keppni, það er ljóst
Hlakka til að sjá úrslitin! Kv. Olla.
Olla (IP-tala skráð) 17.11.2007 kl. 00:26
Lögfræði eða leiklist, ég hef alltaf sagt að þetta sé næstum því það sama.... Þú þarft hinsvegar greinilega að taka betur eftir næst þegar þú flýgur erlendis hvernig freyjurnar meðhöndla björgunarvestin í kynningunni.....
Góður leikur, til hamingju.
Brynjar Már Brynjólfsson (IP-tala skráð) 17.11.2007 kl. 00:28
Glæsileg frammistaða. Til hamningu.
Dögg Pálsdóttir, 17.11.2007 kl. 12:53
Til hamingju með sigurinn! Tek undir þetta varðandi lögfræðina eða leiklistina!Þú ert greinilega efnileg - varstu kannski með í Litla leikklúbbnum á Ísafirði?
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 17.11.2007 kl. 13:53
Jahérna hér, enn og aftur þúsund þakkir fyrir allar góðar kveðjur. Leiklistin fær þó að vera í friði fyrir mér framvegis eins og hingað til, alla vega fram að næsta þætti
HKE, ég verð að fá skýringar á ummælum þínum um Princess DI látbragðið, ég er harðákveðin í að rækta það með mér, hvað svo sem það er. Plís, útskýrðu þetta nánar, svo ég geti tamið mér svona royal-ness.
Brynjar, það hvarflaði aldrei að mér að líkja eftir flugfreyju með björgunarvesti, merkilegt nokk. Ég hef auðvitað komið í flugvél, en eins og þú veist þá var ferðast á milli landa með bátum í mínu ungdæmi
Ragnhildur Sverrisdóttir, 17.11.2007 kl. 17:47
Frábær frammistaða hjá ykkur og ferlega hló ég yfir sixpakkinum!! Til hamingju með sigurinn
Hrönn Sigurðardóttir, 17.11.2007 kl. 23:28
Til hamingju, þið gerðuð mig stoltan af uppruna mínum. Sú spurning vaknar þó í mínum huga hvort leikurinn hafi verið ójafn, þar sem keppendur Ísafjarðar voru allir með reynslu úr spurningakeppnum, en ekki held ég að það hafi verið hægt að segja það sama um Reyknesinga.
Theódór Norðkvist, 18.11.2007 kl. 01:33
Æ hvað var gaman að sjá ykkur fallegu konur í settinu! Og ekki verra að hafa ferskan nörd með sem var skemmtilegur. Þú stóðst þig vel í leikarahlutverkinu og Ólina ekki síður að geta upp á, það má ekki vanmeta það. Til hamingju með leikinn og ég hlakka til að sjá ykkur aftur. Voru stúlkurnar þínar ekki í sjónvarpssal?
Edda Agnarsdóttir, 18.11.2007 kl. 11:19
Vissulega er þetta ekki bara spurning um að við höfum vitað meira en Reykjanes, við vorum líka heppin með spurningar. Þetta lagðist allt mjög vel og ég var t.d. mjög sátt við orðin sem ég fékk í leikatriðinu. Og það skemmir áreiðanlega ekki fyrir að hafa reynslu úr spurningakeppnum, seiseijú og mikil ósköp. Ég vil samt ekki gera lítið úr árangrinum: Halldór veit miklu meira en svona ungur gutti á að vita og Ólína er afskaplega vel að sér á ótrúlegustu sviðum.
Stelpurnar mínar voru ekki í sjónvarpssal að þessu sinni, en ég er harðákveðin í að hafa þær með næst. Þær voru lukkulegar með mig og alveg sérstaklega stoltar að ég gat svarað spurningum úr ævintýrum H.C. Andersen.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 18.11.2007 kl. 14:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.