Ú er mútta og úldin appelsína

Stafablöðin voru myndskreytt rétt í þessu.

Elísabet var snögg að draga upp fyrstu myndina og þurfti enga aðstoð við að skrifa orðið undir: Hús

Næst teiknaði hún konu í lótusstellingu. Vinstra megin á myndinni teygðist einhver flipi inn á hana og ég spurði hvað þetta væri. Hún furðaði sig á að ég þyrfti að spyrja. "Þetta er putti á einhverjum sem er að benda á konuna og segja: Hún!"

Á þriðju myndinni skín sólin glatt. Vinstra megin sést í hálft hús og agnarsmá mannvera er nýkomin út um dyrnar. Út

Svo byrjaði hún á fjórðu myndinni. Ég bað hana blessaða að segja mér nú hvað hún væri að teikna, en hún var handviss um að það væri Ú í orðinu, af því að það heyrðist alveg. Ég benti henni á að það væri ekkert Ú í ungi eða unglingur til dæmis, svo þetta væri ekki algild regla. Hún vildi samt ekki segja mér hvað hún væri að teikna. "Má það ekki vera óvart?" spurði hún.

Ég samþykkti að það mætti vera óvænt og hún staðfesti að það hefði hún einmitt átt við. Svo teiknaði hún andlitsmynd af afskaplega huggulegri konu og skrifaði eitt af uppáhaldsorðunum sínum undir. Gott að það er ekki dagur íslenskrar tungu í dag. Mútter.

Margrét teiknaði tvo náunga. Annar var súr á svipinn, enda sást í talbólu við munn hins að hann sagði: "Farðu burt!" Orðið? Útlægur.

Mynd númer tvö stefndi í að verða afskaplega einföld. Lítil, skökk og skæld appelsína með brúnum blettum. En svo bætti Margrét við stelpu, sem rak út úr sér tunguna af viðbjóði. Appelsínan var nefnilega úldin.

Þriðja myndin var einföld og vafðist ekkert fyrir Margréti fremur en annað. Úr.

Hún lagði mesta vinnu í fjórðu og síðustu mynd. Fyrst teiknaði hún ógurlegan stafla af heyböggum, heil 16 stykki. Svo teiknaði hún stelpu, sem studdist við heygaffal með vinstri hendi, en þurrkaði svitann af enninu með hægri. Loks teiknaði hún bónda, með strá í munninum, sem rétti stelpunni grænan peningaseðil fyrir vel unnin störf. Stelpan var búin.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hugmyndaflugið sem þær systur hafa. Maður fylgist spenntur með  þegar nýtt stafablað kemur.

Þóra (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 19:04

2 Smámynd: Ragnheiður

Jahá þú áttir kollgátuna í morgun, það vafðist ekki fyrir Margréti að teikna lykt ómæ...þessi börn

Ragnheiður , 21.11.2007 kl. 20:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband