22.11.2007 | 09:49
Verðsamanburður. Aftur.
Í leikfangaauglýsingu í Fréttablaðinu í dag hvetja Hagkaup lesendur enn og aftur til að gera verðsamanburð.
Gott og vel.
Hello Kitty litasett kostaði 2.899 kr. í Hagkaupum, en tilboðsverð er 2.199.
Hello Kitty litasett kostaði 1.867 kr. í USA, en er nú hægt að fá á 1.745 kr.
Ponyville hestur og aukahlutir voru á 999 í Hagkaupum, núna á 699 kr.
Ponyville hestur og aukahlutir fást í USA og kosta þar 311 kr.
Mr. Potato Head kostaði 1.299 kr. í Hagkaupum, en tilboðsverð er 999 kr.
Mr. Potato Head fæst í ýmsum útgáfum í USA, en þessi tiltekna kostar 435 kr.
Ef fólk vill eyða tæpum þúsundkalli í Mr Potato, þá selur kaninn svokallaðan júmbópakka sömu gerðar á um 950 krónur. Í honum er herra kartafla, frú kartafla, eitt kartöflubarn og um 25 aukahlutir.
Loks kannaði ég svo verðið á Playmobil Adventskalender, sem Hagkaup selja á 1.599 kr. en seldu áður á heilar 1.999 krónur.
Sama Playmobil dót fann ég í verslun í Þýskalandi. Þar kostar það tæpar 1.300 krónur.
Rétt er að taka fram að tilboðsverð Hagkaupa á Skjaldbökuköppunum, Teenage Mutant Ninja Turtles, virðist ágætt. Hagkaup býður kallana á 995 kr. stykkið, en áður kostuðu þeir 1.499. Sömu karlar kosta á bilinu 811 til 1060 í verslun í USA. Ekki er annað að sjá en að um nákvæmlega sömu karla sé að ræða.
Hagkaup hafa líka lækkað verð á Pet Shop veggmyndum. Um daginn voru myndirnar auglýstar á 1.799 kr, en núna er búið að lækka þær í 1.499 kr.
Myndirnar kosta 780 kr. út úr búð í Bandaríkjunum.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég held að eftir að vera buinn að borga öll gjöld af leikföngunum frá USA þá eru þau dýrari en í Hagkaupum.
Er ekki það mikill verðmunur.
Gunnar Halldórsson (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 12:23
Þetta er smásöluverð í Bandaríkjunum. Þar leggja verslanir vel ofan á innkaupsverðið, rétt eins og hér.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 22.11.2007 kl. 14:48
Adda bloggar, 23.11.2007 kl. 20:03
Smásöluverð í Bandaríkjunum segir ekkert. Þú þarft að leggja við flutningskostnað, tollafgreiðslugjald, virðisaukaskatt á flutningskostnaðinn, virðisaukaskatt á innkaupsverðið o.s.frv.
Púkinn, 23.11.2007 kl. 22:54
Leikföng, sem seld eru í Bandaríkjunum, eru gjarnan framleidd í löndum þar sem framleiðslukostnaðurinn er lítill, t.d. Kína. Þaðan er laaaangur vegur til Bandaríkjanna, með tilheyrandi flutningskostnaði og auðvitað leggur Kaninn ýmis gjöld og tolla ofan á, áður en smásalar leggja sína álagningu á. Ég er ekkert að halda því fram að varan eigi að kosta nákvæmlega sama hér og þar, en finnst fólki eitthvað eðlilegt við 50-120% verðmun? Það finnst mér ekki.
Og þótt skýringanna væri fyrst og fremst að leita í tollafgreiðslugjaldi, virðisauka á flutningskostnað, virðisauka á innkaupsverð o.s.frv., finnst fólki það þá allt í lagi? Það finnst mér ekki. 1.799 kr. hér fyrir vöru sem kostar 780 kr. þar, svo eitt dæmi sé tekið? Nei, takk.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 24.11.2007 kl. 00:55
Segjum t.d. að hlutur kosti sem svarar 1000 kr út úr búð í Bandaríkjunum. Samkvæmt töflunni hér er meðalsöluskattur þar um 5%, en hér leggst leggst fyrst 10% vörugjald á vöruna og síðan 24.5% virðisaukaskattur. Þetta eitt og sér segir að leikföng ættu að vera um 30% dýrari hér, eða 1304 kr.
Afganginn má sennilega útskýra með hærri flutningskostnaði, hærri launakostnaði, hærra innkaupsverði sökum minna magns sem keypt er inn og nokkrum öðrum þáttum.
Það er bara dýrt að vera Íslendingur.
Púkinn, 24.11.2007 kl. 15:06
ÚFF! Ég verð aldrei tilbúin að skrifa upp á að það sé "dýrt að vera Íslendingur!". Ég er til í að skrifa upp á flutningskostnað og gjöld, þ.e. að viðurkenna að þau hafi áhrif, en ekki að þetta sé eitthvað náttúrulögmál. Og okur, hreina og klára okurveðlagningu, kvitta ég aldrei upp á !!
Ragnhildur Sverrisdóttir, 25.11.2007 kl. 22:47
Var að koma frá Bandaríkjunum og verðmunurinn hrópandi. Hef líka verið að panta á Amazon leikföng sem eru á allt að 60% afslætti þar þessa dagana. Ég kaupi þau gegnum Shopusa.is og þau eru allt að helmingi ódýrari komin heim að dyrum hjá mér takk fyrir og ekkert búðarráp. Allt keypt í gegnum tölvuna heima í sólstofu... Dæmi. Ponyhöll á fimmta þúsund á tilboði hjá Hagkaupum en á um 2.000 krónur í gegnum Amazon og Shopusa og komin heim í stofu... Hvet alla lesendur þína til að skoða toys and games á Amazon og fara þar í útsöluvörurnar. Velja svo free shipping innan Bandaríkjanna alla leið til vöruhúss Shopusa og... gangi ykkur vel. Sendið mér línu á bogga61@hotmail.com ef þið lendið í vandræðum og ég skal með gleði leiðbeina. Bara afþví mér ofbýður verðið hér á landi.
Bogga (IP-tala skráð) 26.11.2007 kl. 11:54
Takk, Bogga
Ragnhildur Sverrisdóttir, 26.11.2007 kl. 12:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.