26.11.2007 | 13:06
Afvelta jólasveinn
Systur vöknuðu óguðlega snemma í morgun, enda var mamma þeirra að fara í flug til Svíþjóðar og þetta blessaða morgunflug hér á landi er eiginlega næturflug. Það er nú eiginlega ekki rétt að segja að þær hafi vaknað, þær rétt rumskuðu nóg til að knúsa hana bless og fengu svo að skríða upp í stóra rúm til mín. Ég varð að vera í miðjunni og svo hrutu þær upp í eyrun á mér
Þær ætla að skreyta piparkökur í dag og fara á fimleikaæfingu og svo spurðu þær ósköp fallega hvort þær mættu kannski fá kínamat í kvöld? Af því að mamma er ekki heima? Af því að mamma er í burtu í alveg heila tvo daga? Auðvitað fá blessuð litlu, afskiptu börnin kínamat í kvöld.
Elísabet virðist seint ætla að gleyma íbúðinni okkar í Barmahlíð. Hún hefur margoft spurt af hverju við fluttum þaðan. Og lætur eins og hún skilji ekki þegar við bendum pent á að húsið okkar sé miklu rýmra en íbúðin í Barmahlíð og núna séu þær systur með stórt herbergi og að auki heilmikið pláss framan við herbergið og svo eigum við núna þennan yndislega garð með kofa, trampólíni og heitum potti. "Já, en af hverju fluttum við?" spyr hún áfram.
Hún hefur dálítlar áhyggjur af Barmahlíðinni, henni finnst til dæmis vont að hugsa til þess að íbúðin okkar njóti ekki lengur umhyggju þeirra systra. Þegar við fórum í skólann í morgun sáum við fallega skreytt tré í einum garðinum og þá hrópaði Elísabet upp: "Ó, nei! Aumingja Barmahlíð! Enginn skreytir hana núna!"
Ég sagði að það væri nú ekki rétt, allir í því húsi settu upp skraut, þótt það væri ekki okkar skraut. Við hefðum ekki heldur átt heima þar síðustu jól, en Barmahlíðin hefði nú þolað þá fjarveru okkar. Henni fannst þetta aumt svar.
Upplýsti jólasveinninn í garðinum var fokinn um koll þegar við vöknuðum í morgun. Þær systur ráku mig út í rokið og rigninguna að rétta karlangann við. Og núna er hann dottinn aftur.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég skil þetta með Barmahlíðarvorkunina mjög vel. Er edri kona en harma oft örlög Hringbrautaráttatíuogfjögur eftir að hafa misst mig sem ábúenda og mitt fólk allt
Jenný Anna Baldursdóttir, 26.11.2007 kl. 13:10
Það er greinilegt að út um alla borg eru hús sem eiga verulega bágt
Ragnhildur Sverrisdóttir, 26.11.2007 kl. 14:31
Já mér finnst þetta góð spurning synd og skömm að þið séuð farinar úr hverfinu. En hvernig er það á ekkert að koma í heimsókn? Ég legg til að þú hringir og við finnum góðan tíma fyrir heimsókn !!!
Áfram Valur
Linda Ósk Sig (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 16:38
Já, Linda, við stefnum á næstu viku. Ég hef samband
Ragnhildur Sverrisdóttir, 27.11.2007 kl. 19:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.