É elska ikur

Ég sótti systur snemma í gær, enda höfðum við margt að sýsla. Margrét var með einhverja magakveisu, sem hvarf á undraverðan hátt um leið og hún var komin heim í jólastúss. Svo kláruðu þær að lesa og það gekk stórvel. Margrét er raunar orðin fluglæs, en Elísabet fer sér aðeins hægar. Hún les stundum allt sem fyrir hana er sett, en aðra daga er hún illa upplögð og þá stendur flest í henni. Í gær var hún í fantaformi.

Þær fóru í fimleika síðdegis og ekki skemmdi fyrir að Marta María uppáhaldsnágranni slóst í för með þeim. Þær hoppuðu og skoppuðu, kútveltust í kollhnísum og skemmtu sér konunglega.

Eftir kvöldmat plötuðu þær systur mig til að lesa Fíusól. Það sótti hins vegar á mig herfileg syfja svo ég steinsofnaði í sófanum í hálftíma á meðan þær háttuðu sig og dunduðu sér við að skrifa á blöð. Svo var ég vakin með látum. Elísabet rétti mér blöð þar sem hún hafði skrifaði ástarjátningu: "Mmm Dla bsta." Já, henni finnst algjör óþarfi að splæsa of mörgum sérhljóðum, enda skildi ég alveg hvað stóð: "Mamma Dalla besta." Ég er þessi Dalla (lesist eins og skralla og tralla eða allamalla).

Hún hafði svo fengið bakþanka, því á næsta blaði var framhaldsyfirlýsing: "og Kata þid éruþ og Margrét pstar."

Neinei, hún heldur því ekki fram að við séum neinar pestar, heldur erum við bestar! Og á þriðja blaðið skrifaði hún, afskaplega stolt: "Elísabet skrvaþi alt." Svo sannarlega skrifaði hún þetta allt saman og það hjálparlaust.

Margrét skrifaði einfalda yfirlýsingu á krítartöfluna þeirra: "É elska ikur."

Þær fengu að sofna í stóra rúminu og af því að mamma þeirra er í útlöndum lét ég vera að lyfta þeim yfir í sín rúm. Við kúrðum allar saman í nótt og þegar Kata hringdi og vakti okkur rúmlega 7 var það fyrsta sem Elísabet sagði við hana: "Við sváfum í stóra rúminu í alla nótt!"

Þrátt fyrir að hafa sofið lengur en við ætluðum okkur náðum við að ganga í skólann eins og venjulega. Þær verða alltaf óskaplega svekktar ef þeim er hent upp í bíl, enda liggur við að það sé enginn tímasparnaður, þetta er svo stutt.

Þær tóku af mér hátíðlegt loforð að sækja þær snemma í dag. Þær fara í fótbolta klukkan 4 og svo vilja þær gjarnan fá að skreyta piparkökur. Ekki má heldur gleyma, að í dag fá þær nýtt stafablað.

Ég er alltaf jafn spennt fyrir þessum blessuðu stafablöðum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þetta er orðin spennandi framhaldssaga.  Bíð í ofvæni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.11.2007 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband