F

Stafur vikunnar er F.

Margrét hikaði ekki við fyrstu myndina. "Viltu rétta mér bláan og rauðan og  brúnan?" spurði hún og svo teiknaði hún brúna fánastöng og á henni íslenska fánann. "Ég þarf sko ekki hvítan, blaðið er hvítt," sagði hún. Fáni.

Á næstu mynd er glaðleg stelpa með tösku að ganga í burtu frá húsi. Hún er að fara.

Allt í einu mundi Margrét ekki eftir nokkrum sköpuðum hlut með F-i í. Hún fletti Mogganum og einhverjum bæklingum og skyndilega tók hún við sér. Hún teiknaði tvær flugvélar, önnur er hátt uppi í skýjum en hin er með hjólin niðri, enda rétt að taka á loft. Svo er myndarleg bygging og í vinstra horni er agnarsmár bíll sem dregur kerru fulla af töskum. Flugvöllur.

Enn þurfti Margrét að fletta blöðum svo hún fengi hugmynd að fjórðu og síðustu mynd. Svo teiknaði hún tvær fallegar greinar sem liggja hvor á móti annarri og á þeim báðum hvílir hreiður. Í hreiðrinu liggur fugl.

Elísabet var fljót að finna fyrstu myndina. Tveir fótleggir, kona í fjólubláu pilsi og bleikum skóm. Af einhverjum ástæðum eru báðir skórnir kirfilega merktir "SA". Fínt merki, líklega.  Fætur.

Á næstu mynd eru þrjár skrautlegar mannverur. Fólk.

Þriðja myndin sýnir mannveru sem réttir höndina að annarri mannveru og er greinilega að biðja um eitthvað. Textinn undir myndinni: Fæ ég?

Ég fékk ekkert að vita hvað ætti að vera á fjórðu mynd, hún kúrði sig yfir hana og fullyrti að það væru sko mörg F í þessu, hún vissi það og Erla kennari vissi það og allir vissu það. Svo rétti hún sig upp og ég sá að hún hafði skrifað í myndarammann: F-F-F Fúsi fær sér ís. F-F-F!

Ég datt enn einu sinni í gamla farið og spurði hvort ekki hefði verið nær að hún hefði teiknað Fúsa að fá sér ís og skrifað þennan texta undir myndina. "Þetta er myndin!" sagði hún hneyksluð og skrifaði svo skýringartextann undir myndina: Stafavísa.

Ég baðst forláts, sagði þeim að ég áttaði mig aldrei á hvað þær væru flinkar að leysa þessar stafaþrautir sínar. "Það er allt í lagi, þú ert ekki barn lengur," sagði Elísabet með hluttekningu.

Eftir heimalærdóminn fóru systur á fótboltaæfingu og kíktu svo við hjá Hlédísi vinkonu sinni, en þær fá að gista þar á laugardag og þurftu aðeins að kanna aðstæður. Svo brunuðum við heim að skreyta piparkökur. Stjörnur, englar, karlar og kerlingar, hreindýr og snjókorn í öllum regnbogans litum.

Mamma þeirra hringdi frá Kastrup þegar við vorum að ljúka við skreytingarnar og eftir símtalið völdu þær tvær fallegar piparkökur sem hún má borða þegar hún kemur heim undir miðnættið. Svo settust þær niður og sömdu sameiginlegt bréf til mömmu sinnar sem Margrét skrifaði: "Góða mamma. þú ert góþ. Viþ veldum piparkaukur. Ég veldi jólatrjé og Elísabet veldi sjörnuna. Kveja Margrét og Elísabet"

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þær systur eru hreinir snillingar - hugmyndaflugið við stafamyndirnar er hrein dásemd

Takk fyrir stafafærslurnar. Þær rifja upp stundirnar þegar mínir ormar komu með sín stafablöð heim úr Fossó. Eflaust er formið svipað og þá, ekki svo langt síðan þó tíminn fljúgi.

Það hefur nú verið notalegt fyrir Kötu að koma heim í kotið og finna nýtilhafðar piparkökur og fallega kveðju. Ef ég vissi ekki betur þá gæti nú læðst að manni grunur að hún væri komin í "flugbusiness" með öllum þessum skreppum útum víðan heim .

Ég þakka kaffiboðið og læt örugglega sjá mig við gott tækifæri þegar ég verð heima næst og á móti væri nú alls ekki leiðinlegt að sjá hana, hvað þá ykkur allar mæðgurnar væruð þið á flakki hér í grennd við Munchen

Guðný Ósk (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 10:09

2 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Yndislegar stelpur - og hugmynda flugið alveg í lagi. Mikið vildi ég að til hefði verið blogg þegar mínar voru litlar! Ekki það að ég hefði getað skrifað dagbók - en þetta er tilvalin leið til að skrá hjá sér allt þetta skemmtilega sem  gerist í daglega lífinu - ekki bara stóru stundirnar sem maður myndar í gríð og erg.

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 28.11.2007 kl. 12:53

3 Smámynd: Ragnheiður

Yndislegur pistill og sá næsti á undan líka þó að þar sé ekki fjallað um stafamyndirnar, þær eru klárar að leysa úr klemmur og hugsa greinilega langt út fyrir kassann sem við fullorðna fólkið erum komin í. Þess vegna er gott að lesa, lífið er einfaldara þegar maður er barn. Mér finnst líka gaman að sjá hversu vel er búið að þeim að öllu leyti, til hreinnar fyrirmyndar.

Ragnheiður , 28.11.2007 kl. 22:54

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hm gaman að þessu! Hvað er mamma að skipta sér af sköpunarverkinu, þetta á að renna áfram eins og þær hugsa, allt leyfilegt í þágu sköpunar og hugmyndar!

Edda Agnarsdóttir, 29.11.2007 kl. 16:06

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Gættu að hvað þú segir, Guðný Ósk, annars áttu eftir að vakna upp við vondan draum einn daginn í Munchen, með fjögurra manna familíu við útidyrnar  Reyndar efast ég um að tilefni gefist til Þýskalandsferðar á næstunni, svo þú getur sofið róleg enn um sinn. Við erum hins vegar hérna í Logalandinu, næst þegar þú kíkir á klakann.

Þegar stelpurnar voru kríli vorum við Kata duglegar að skrifa í dagbók, en bloggið er bara svo miklu, miklu þægilegra. Sérstaklega af því að ég vinn heima og get hent inn færslum þegar hentar. Af efni er alltaf nóg, að minnsta kosti á meðan þær hugsa sífellt út fyrir hefðbundna kassann. Og ég er í alvöru að reyna og reyna að beina þeim ekki of snemma í kassann, ég er bara svo forrituð sjálf að stundum get ég ekki stillt mig

Ragnhildur Sverrisdóttir, 3.12.2007 kl. 15:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband