Maraþon

Mömmur í Logalandi skruppu til New York á miðvikudag og komu heim eldsnemma í morgun. Systur lifðu í vellystingum praktuglega hjá Ásthildi frænku á meðan, fyrir utan laugardag og fram á sunnudag, þegar þær gistu heima hjá Hlédísi.

Þær eru orðnar svo fullorðnar að þær fengu stundum að hringja í okkur út og spjalla um daginn og veginn. Þær höfðu mestan áhuga á að vita hvort við hefðum kannski séð einhver leikföng í Ameríkunni, en við vörðumst allra frétta.

Síðdegis í gær að íslenskum tíma heyrðum við enn í þeim. Þá voru þær ekki lítið spenntar, þær voru á leiðinni á veitingahús með krökkunum hennar Ásthildar. Pizza á veitingastað með tveimur frænkum og einum frænda? Fullkomið. Þar að auki höfðu þær farið daginn áður á McDonald's með Hlédísi. Allt gott.

Við Kata erum auðvitað aðframkomnar af þreytu eftir svefnleysi og jólasjopperí í Ameríkuferðinni. Ferðin var algjörlega frábær og við vorum líka með frábæra ferðafélaga. Við vorum ákaflega samstíga, sérstaklega á veitingastöðum kvölds og morgna. Takk fyrir síðast, Þórdís og Kristján.

 Hvorki ég né Kata þekktum til New York að ráði, svo við vorum duglegar að túristast inn á milli verslunarferða, t.d. að rölta um Central Park og kíkja á Frelsisstyttuna.

Röltið okkar um Central Park endaði nú næstum með ósköpum. New York maraþonið var nefnilega sama dag. Við Kata ætluðum að rölta yfir gangstíg í garðinum þegar við heyrðum drunur í fjarska eins og tryllt fílahjörð væri að nálgast. Svo birtust nokkur þúsund hlauparar. Á göngustígnum okkar.

Kata bjargaði sér léttilega yfir stíginn, tók  bara undir sig sprett og forðaði sér yfir á gangstéttina hinum megin án þess að trufla hlaupið nokkuð. Ég var auðvitað seinni, stóð eins og þvara norðan megin og sá fram á að þurfa að bíða í þrjár klukkustundir eftir að komast yfir til Kötu. Sem sýndi mér enga samúð frekar en fyrri daginn og hrópaði bara að ég ætti að koma yfir næst þegar færi gæfist.

Hún hefur allt aðra sýn á "færi" en ég.

Ég var orðin köld og hrakin á norðurstéttinni þegar mér sýndist allt í einu eins og mannflóðið væri aðeins að grisjast. Ég setti mig í stellingar og um leið og hlaupari númer átján þúsund þaut framhjá tók ég undir mig stökk inn í miðja þvöguna, lét berast fimlega með straumnum niður eftir gangstígnum, en færði mig um leið markvisst að syðri gangstétt.

Þetta var fögur sjón.

Ég hljóp engan maraþonhlaupara niður og enginn þeirra hljóp mig niður. Ég komst upp á gangstéttina, í örugga höfn hjá Kötu, um svipað leyti og lögreglumenn New York borgar voru farnir að losa um smelluna á byssubeltunum sínum, albúnir að skjóta þennan hryðjuverkamann niður.

Ég hljóp sem sagt í New York maraþoninu. Það er dagsatt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er í kasti, GMG, þetta með þátttökuna í hlaupinu er svo myndrænt.  Engin verðlaun í sjónmáli?

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.12.2007 kl. 16:14

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Verðlaun? Ég slapp lifandi. Það er nú þónokkuð!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 3.12.2007 kl. 16:19

3 Smámynd: Ragnheiður

Hehehehe ohh nú kom hundrassinn að gá að hverju ég væri að hlæja....flott maraþon

Ragnheiður , 3.12.2007 kl. 16:38

4 identicon

Maður fær augljóslega meira út úr handboltanum en að læra að öskra á milli marka. Næst þegar þú ferð í Nevjorkmaraþonið manstu eftir því að vera með hnéhlífar svo þú getir kastað þér inni í teiginn

hke (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 00:11

5 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

hahahahha, snilld!!!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 5.12.2007 kl. 11:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband