"Dæla" lögreglunnar

Í Fréttablaðinu í dag eru vangaveltur um bókina mína um Pólstjörnumálið, sem kemur út í lok vikunnar. Þar segir: "Ekki er að undra þótt laganna verðir hafi verið til í að láta dæluna ganga um sinn hlut í málinu; lögreglan var í sárri þörf fyrir að bæta ímynd sína og í því ljósi hefur Pólstjörnumálið reynst dýrmætara en nokkur markaðsherferð."

Ég hló upphátt þegar ég las þetta. Ef lögreglan hefði látið "dæluna ganga" um rannsókn málsins þá hefði nú aldeilis verið léttur leikur að skrifa þessa bók! Sannleikurinn er hins vegar sá, að lögreglan tjáir sig afskaplega takmarkað um mál sem eru í rannsókn. Hinir grunuðu í Pólstjörnumálinu sitja enn í gæsluvarðhaldi og hæpið að ákæra verði gefin út fyrir jól. Við þær aðstæður er lögreglan afskaplega erfið við að eiga, satt best að segja. Ég þurfti því að leita miklu víðar fanga til að púsla saman sögunni af rannsókninni. Sú saga er lyginni líkust, mikill hasar og fjör Wink

Hitt er svo annað mál og engin ástæða til að leyna því að ég fékk lögregluna til að segja mér eitt og annað fróðlegt af vinnubrögðum sínum almennt, t.d. hvernig samstarfinu við tengiliðinn hjá Interpol var háttað, hvernig tæknimennirnir bera sig að þegar þeir rannsaka vettvang, ég gróf upp upplýsingar um nætursjónaukana sem hún notar og sagði af alls konar vinnureglum í tengslum við aðkomu sérsveitarinnar. Þarna er að finna nákvæmar lýsingar á skútunni, ferð hennar yfir hafið og viðkomustaði hennar á þessari löngu leið. Svo kemur landhelgisgæslan við sögu, sem og danskt herskip, norsk skútuleiga, danskar verslanir og veitingahús, Færeyingar eiga sína fulltrúa og þar sem þeir sem nú sitja í gæsluvarðhaldi hafa komið við sögu lögreglu- og dómsmála áður var ýmsar upplýsingar um þá að finna.

En þetta, að draga smáatriði rannsóknarinnar upp úr lögreglunni?? Ég er viss um að vinir mínir hjá löggunni hafa hlegið með öllum kjaftinum þegar þeir lásu þessa klausu í Fréttablaðinu, því í þau skipti sem ég settist niður með þeim var það líkara innhverfri íhugun en frásögn. Ég spurði og viðbrögðin voru þessi: Ég fékk stundum aðeins ítarlegri upplýsingar um eitthvað sem hafði komið fram hvort sem er, stundum fékk ég almennar lýsingar, sem hefðu getað átt við hvaða mál sem er, ég fékk oft þau svör að spurningu minni væri ekki hægt að svara á þessu stigi málsins og svo voru skiptin þar sem menn reyndu ekki einu sinni að gera minnstu tilraun til svara, sátu bara svipbrigðalausir eða glottandi. Það verður seint bók úr slíku. Ég held svei mér þá að þeir geti bara ekki tjáð sig af viti um mál sem eru í rannsókn, þetta er svo innbyggt í þá. Þeir lágu ekkert á þeirri skoðun sinni að þeim þætti ekki tímabært að skrifa þessa bók, þeir vildu að málið yrði afgreitt fyrir dómstólum áður en það yrði gert.

En þrátt fyrir tregðu lögreglunnar er sagan samt öll í bókinni. Og vissulega er hún skrifuð "frá sjónarhóli lögreglunnar" eins og Fréttablaðið segir, að því leyti að hún rekur eltingaleikinn við fíkniefnasmyglarana mánuðum saman. En þarna er bara svo miklu, miklu meira. Og ég þarf svosem ekkert að fela það, að mér finnst framganga lögreglunnar í málinu til mikillar fyrirmyndar, við eigum þar toppfólk.

Fréttablaðið skrifar eins og lögreglan hafi þurft að bæta ímynd sína og þess vegna látið dæluna ganga. Með klausunni er birt mynd af ríkislögreglustjóra. Hann kemur nánast ekkert við sögu í bókinni minni, þar er fyrst og fremst sagt af mönnunum í fíkniefnadeildinni og kollegum þeirra víða um Evrópu. Mér vitanlega þurfti sá hópur ekkert að bæta ímynd sína. En gerir það áreiðanlega, eins og tæknideildarmennirnir, sérsveitarmennirnir og aðrar löggur. Þetta var einfaldlega risavaxin óperasjón og leyst með glæsibrag.

Lesið bara bókina! Það ætlar hann alla vega að gera, einn grunaðra í skútumálinu, sem hringdi í mig af Litla-Hrauni í gær. Ég sendi honum eintak í vikulok.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Haha nú hló ég líka, fyrst að pókerfeisi lögreglunnar (kannast aðeins við þá í þeim ham) og svo að þessum fyrir austan. Alveg gæti ég trúað að bókin sé svo flott hjá þér að hann vilji eiga hana til að komast að því hvað hann var að gera....þú ert einhvernveginn þannig kona.

Aðventukveðja og til lukku með bókina.

Ragnheiður , 4.12.2007 kl. 12:35

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk, Ragnheiður!

Ég hef fullan skilning á því að þessi kurteisi, ungi maður, sem hringdi í mig í gær, sé forvitinn að vita hvað um hann er skrifað  Reyndar lít ég eiginlega ekki svo á að bókin sé um þessa tilteknu menn, hún er heldur ekki um tiltekna lögreglumenn, henni er frekar ætlað að rekja þessa óperasjón, gefa nasasjón af starfi lögreglunnar annars vegar og fíkniefnaheiminum hins vegar. En auðvitað sendi ég þessum strák á Hrauninu bókina. Og félögum hans.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 4.12.2007 kl. 12:55

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hugulsöm? Seiseijú, mikil ósköp. Og svo ótal margt annað. Sem ég er viss um að þú gætir tíundað ef þú bara vildir, Jóhann Örn Arnarson, enda drýpur aðdáun þín á mér af hverju orði.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 4.12.2007 kl. 17:29

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jóhann Örn svo bitur ekkað

Til hamingju með bók, loksins gastu gefið upp hvaða rit var í vinnslu.  Þú rændir mig skúbbinu kona góð.  Hm....

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.12.2007 kl. 19:44

5 Smámynd: Einar Ben Þorsteinsson

Þú varst nú svo leiðinlegur Jóhann að það hefði nánast mátt hneppa þig í gæsluvarðhald.

Einar Ben Þorsteinsson, 5.12.2007 kl. 02:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband