Tilgangur lífsins

Eitthvað voru mömmur enn vankaðar eftir Ameríkuferð, því þegar systur voru komnar í skólann í gærmorgun uppgötvaðist að möppurnar þeirra voru hér heima. Þessar grænu pappamöppur, eða skilaboðaskjóður, eru bráðnauðsynlegar til að ferja lestrarbækur heim úr skóla og til baka aftur, fyrir nú utan að hlífa hinum stórkostlegu stafablöðum.

Engar möppur = engin stafablöð í gær. Mér var svo brugðið að ég gleymdi meira að segja að spyrja stelpurnar hver stafur vikunnar væri. Sat bara og góndi út í loftið, hugsaði um tilgang lífsins og stafablöð. O.K., kannski smá ýkjur, ég tók þetta ekkert svoooo nærri mér Wink

Við gættum þess að setja möppurnar í töskurnar í morgun og nú er pottþétt að þær koma heim með stafablöðin.

Þær hafa svo, þrátt fyrir óbilandi áhuga á fimleikum, ákveðið að sleppa æfingunni í dag, af því að Magga frænka bauð þeim með sér á frumsýningu á Duggholufólkinu. Svoleiðis happ láta þær ekki úr hendi sleppa. Þær æfðu líka handahlaup á stofugólfinu hérna heima í gærkvöldi, með Möggu sem áhorfanda og yfirhvetjanda. Þær fóru áreiðanlega mörg hundruð kollsteypur, enda sofnuðu þær hratt og vel.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Kr...kast og það af stærri gerðinni.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.12.2007 kl. 09:46

2 identicon

hló upphátt að new york maraþoni

Svana (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 10:40

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Alveg er ég bit á fólki sem hlær að hremmingum mínum í The Big Apple! Haldiði að það sé grín að þeytast í veg fyrir fólk, sem hefur stefnt að þátttöku í NY Maraþoni alla ævi? Æft og æft eins og vitleysingar, aldrei hlaupið undir þessum rúmu 40 km á dag í fimmtán ár, sleppt fjölskyldunni út á Guð og gaddinn í leit að hinni einu sönnu fullnægju, að komast þessa bjánalegu vegalengd á aðeins skemmri tíma en í gær, jafnvel aðeins skemmri tíma en einhverjir 17 þúsund aðrir? Hvað hefði svo einbeitt fólk gert, ef ég hefði fellt það og þar með komið í veg fyrir að það næði "personal best"? Hvað ef ég hefði fellt Bjarna Ármanns? Hmmm, kannski hefði ég nú ekki verið skömmuð sérstaklega fyrir það, en samt, þú sérð í hve mikla hættu ég lagði mig, Svana, og mér finnst hreint ekki fallegt að hlæja að því. Eina sem ég óttaðist meira en allt maraþonfólkið var Kata, sem var farin að ókyrrast á syðri gangstétt.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 5.12.2007 kl. 10:48

4 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Þú gætir mögulega fengið færi á því að fella Bjarna Ármanns ... í Útsvari. Ég var nú ekki mjög hress þegar ég sá að við drógumst með ykkur. Fyrir utan gáfur ykkar og yndisþokka þekki ég marga Vestfjarðavini sem verða í tilvistarkreppu þegar við keppum. Hlakka samt til að hitta þig í eigin persónu.

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 5.12.2007 kl. 11:42

5 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Við fjölmennum á Duggholufólkið því við mæðgur erum allar með hlutverk í myndinni. Dætur mínar leika ótugtir - sú yngri aðal ótugtina og hin klíkusystur hennar. Ég leik síðan mömmu þeirrar yngri. Þetta verður ekkert nema gaman. Ef dætur þínar hafa séð myndina Stikkfrí þá er mín yngri þar tveggja ára og ómótstæðileg og lét druslast með sig út og suður......

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 5.12.2007 kl. 13:46

6 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég hlakka líka til að hitta þig, Guðríður Vestfjarðaskelfir  Við munum takast á hart í þessari yndisþokkakeppni. Kannski hefði ég átt að auka sigurlíkurnar og bíða eftir hlaupara nr. 21.342 þarna í Central Park, en mér var bara svo fjári kalt að norpa svona.

Kristín, hér hefur sko verið horft á Stikkfrí aftur og aftur. Á ég að trúa því að litla, sæta, krúttið í þeirri mynd sé óalandi og óferjandi klíkugella í nýjustu myndinni?? Hvusslags?!! En þetta þýðir líka að ég verð að sjá myndina sjálf. Magga systir bauð mér hins vegar ekki með, hún ætlar bara að ræna dætrunum dagspart.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 5.12.2007 kl. 14:15

7 identicon

Sæl Ragnhildur

new york maraþon

Það rifjast upp fyrir mér lýsingin þín á hjólatúrnum ykkar í sumar þú á Hlaupahjólinu með Vatnsbrúsana Nú skil afhverju dætur þínar kalla þig klaufa mömmu

Fyrigefðu ég ættla ekki að vera ókurteis

JFK

J Friðrik Kárason (IP-tala skráð) 5.12.2007 kl. 14:17

8 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Hahaha!! Já, ég reyni svosem ekkert að halda því fram að ég sé fyrirmynd annarra hlaupara eða hlaupahjólaidjóta, fjarri því! Og dætur mínar hafa ærnar ástæður til að kalla mig klaufamömmu, þar ræður því miður ekki bara fótafimi mín. Ferðin um Fossvogsdal á helv.... hlaupahjólinu er því miður ofarlega í huga ALLRA sem sáu til mín þann dag

Ragnhildur Sverrisdóttir, 5.12.2007 kl. 14:27

9 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Ó já þetta er sama stúlku barnið. Ég get reyndar ekki sagt skjótt skipast veður í lofti því hún hafði níu ár til að breytast úr litla saklausa rænda barninu í vondu stelpuna!

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 5.12.2007 kl. 15:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband