Jólajógúrt í janúar

Hér sit ég með krosslagða putta (sem gerir skriftir að vísu heldur erfiðar). Ég vona að bókin mín um Pólstjörnumálið náist úr prentun fyrir helgina. Núna stefnir allt í að það hafist.

Annars er ég ekkert að bila á taugum út af slíku smotteríi. Í dag komu systur hins vegar heim með síðasta stafablað haustsins og ég get ekki beðið eftir að þær leysi það.

Stafur vikunnar er J. Margrét byrjaði að ryðja upp úr sér orðum sem byrjuðu á J. "Jóla-" hitt og þetta var auðvitað áberandi, en líka "Jógúrt" og "Janúar".

Ég hlakka til að sjá hana myndskreyta janúar og LOFA að reyna ekki að hafa nein áhrif á listamanninn.

Systur eru í jólaklippingu með mömmu sinni núna og fara svo í bíó með Möggu. Það verður komið langt fram á kvöld þegar röðin kemur loks að stafablaðinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband