Duggholufólkið

Mér leist nú satt best að segja ekki á blikuna fyrr í dag, þegar ég var búin að rifja upp þjóðsöguna að vestan um Duggholufólkið, hópinn frá Súganda sem varð úti á leið yfir fjallið frá Bolungarvík. Þetta var greinilega efni í mjööööög krassandi bíómynd.

Systur voru lengi í bíóinu með Möggu frænku, enda var þetta frumsýning á Duggholufólkinu, með öllu sem því tilheyrði. Þarna voru leikararnir til dæmis og þær voru afskaplega ánægðar með að hitta "draugastrákinn" og alla hina. Draugastrákurinn var fyndinn. Þegar Elísabet heilsaði honum sagði hann: "Hey, hvað ert þú að gera hér? Veistu ekki að myndin er bönnuð innan 18?" Þetta þótti þeim systrum óborganlega fyndið.

Myndin var alveg hroðalega spennandi frá upphafi til enda. Ég veit ekki hvort Magga systir náði söguþræðinum, hún var svo upptekin að útskýra eitt og annað fyrir systrum, hughreysta Elísabetu þegar hávaðinn var of mikill (Elísabet hatar hávaðann í bíó og skiptir þá engu hvort hann er vegna gleðiláta eða einhvers skelfilegs) og svo tóku þær systur syrpur í taugaveiklun og hamingju til skiptis.

Þetta var greinilega frábær mynd. Þegar þær ultu hér inn um dyrnar voru þær óskaplega óðamála. Við Kata náðum orði á stangli: "Ísbjörn" var eitt. "Draugastrákur" var annað. "Andaglas" var þriðja. Og heimurinn hafði verið ótrúlega ósanngjarn við litla draugastrákinn, sem varð að leiðrétta það sem missagt hafði verið um hann í gegnum tíðina.

Þegar þær höfðu knúsað Möggu bless og voru sestar við síðbúinn kvöldmatinn héldu þær áfram að tala um myndina. En Margrét var nú eiginlega að fá nóg af þessum spenningi öllum saman. Þegar systir hennar lýsti einhverju krassandi atriði stundi Margrét og sagði: "Eigum við ekki að tala um eitthvað annað. Ég meina, lítum á björtu hliðarnar!"

Systir hennar hætti frásögn vegna hláturs og mömmur gátu ekki haldið áfram með kvöldmatinn næstu mínúturnar.

Klukkan var vel yfir níu þegar systur voru loks tilbúnar í háttinn. Það var því enginn tími fyrir stafablöðin í dag, en það bjargast nú því skiladagur er ekki fyrr en á föstudag. Ég gat nú ekki farið að pína þær til að gera þessi blessuðu stafablöð þegar komið var svo langt fram yfir háttatíma? Eða hvað?? Kannski..... Nei, nei, ég get alveg beðið í sólarhring í viðbót.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Já myndin er virkilega fín og alveg mátulega spennandi!

Það koma svona spennuaugnablik en þau standa stutt yfir og engann heyrði ég gráta í bíó. En ég neita því ekki að ég rak upp kæft hræðslu óp svona einu sinni til tvisvar. Og mamma mín á níræðis aldri líka.

Það er semsagt ekki verið að hræða líftóruna úr börnunum en samt er spenna og fjör og manni er sko alls ekki sama hvernig fer fyrir fólkinu!

Og svo eru dýr í myndinni - og það er alltaf svo gott..

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 6.12.2007 kl. 10:46

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Þegar Elísabet vaknaði í morgun var það fyrsta sem hún stundi upp, svefndrukkin: "Þið VERÐIÐ að sjá þessa mynd!"

Og þær ætla sko með okkur.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 6.12.2007 kl. 11:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband