6.12.2007 | 09:28
Jólin, jólin...
Það er að verða jólalegt um að litast í Logalandinu. Að vísu er nú enn fremur lítið af skrauti innan dyra, en það stendur til bóta um helgina. Utan dyra er þetta allt að koma. Serían löngu komin á svalirnar, önnur á litla kofann þeirra úti í garði og svo er upplýstur jólasveinn á pallinum. Fyrir framan hús stendur upplýst jólatré og í gær hafði ég loks af að setja seríu á þakskeggið fyrir ofan bílskúrsdyrnar.
Enn á eftir að leysa vandann með síklifrandi jólasveininn frá Byko. Við keyptum sveinka að þrábeiðni dætranna, sem geta ekki ímyndað sér neitt dásamlegra en þybbinn jólasvein, sem klifrar upp og niður upplýsta slöngu allan sólarhringinn. Sveinki átti að príla á svölunum, en svo kom í ljós að honum fylgir leiðinda straumbreytir, sem verður að vera innanhúss! Það takmarkar mjög hugsanlega sveinka-staði. Ætli þrautalendingin verði ekki að láta hann klifra utan á kofanum þeirra systra í garðinum? Þá fer nú heldur betur að verða skrautlegt um að litast þar. Hinn möguleikinn er að láta sveinka puða á slöngunni við útidyrnar að heimili okkar. Það telst kannski ekkert sérstaklega smart, en þá ber að hafa í huga að helmingi heimilisfólks finnst það algjörlega frábært.
Kata hefur tekið bakstursköst með systrum af og til. Piparkökurnar, sem voru bakaðar og skreyttar í síðustu viku, eru löngu búnar. Núna eru tveir fullir stampar af smákökum, sem voru bakaðar í gær og í fyrradag og endast vonandi út vikuna. Við erum nefnilega á því að smákökur eigi að borða á aðventunni, en ekki á jólunum þegar maður kemur aldrei niður slíku góðgæti eftir allar kjötmáltíðirnar og konfektið.
Ekkert skyggir á jólastemmninguna á þessum bænum, til allrar hamingju. Stundum rekst ég að vísu á einhver pirringsskrif fólks, sem lætur eins og jólin séu eintómur hamagangur og læti og ekkert nema hámark lífsgæðakapphlaupsins. Ég reyni að láta slíkt ekki fara í taugarnar á mér, en tekst það ekki alltaf. Í fyrra varð sá pirringur minn að heilum pistli í Mogganum og ég birti hann bara hérna aftur. Þá er sú yfirlýsing frá:
Veiðileyfi í desember
Hann virðist ætla að hefjast enn á ný, söngurinn um að jólin séu hátíð kaupmanna, sem setji jólaskrautið allt of snemma upp, drekki öllum í auglýsingum og telji fólki trú um að það sé algjörlega bráðnauðsynlegt að eignast alls konar óþarfa.
Og nú hefur enn einu sinni verið gerð könnun á því hve miklu Íslendingar muni eyða í jólahaldið. Rannsóknarsetur verslunarinnar segir að það verði um 8 milljarðar króna. Reiknað er með að þessi mikla verslun fari á skrið á nýbyrjuðu kortatímabili. Íslendingar ætla víst flestir að kaupa jólagjafir fyrir um 26 til 50 þúsund krónur, en tæpur fjórðungur þjóðarinnar reiknar með að nota 51 til 75 þúsund krónur í gjafir.
Jólin eru hátíð ljóss og friðar. Þau eru hátíð barnanna. Það má vel vera að sumum þyki þau líka vera hátíð kaupmanna og að þannig séu þau slæm birtingarmynd neyslusamfélagsins. Þar er ég algjörlega ósammála.
Í desember vil ég fara á jólatónleika, sjá jólakvikmyndir, kaupa jólaskraut og skreyta allt hátt og lágt heima hjá mér. Ég vil kaupa sérstakt jólaskraut til að punta nýja herbergið stelpnanna minna og útbúa fallegan aðventukrans á stofuborðið. Ég vil fara með stelpurnar mínar á jólaleikrit og kaupa handa þeim fín og falleg jólaföt. Ég vil hlaupa á milli verslana og finna þessa einu réttu jólagjöf handa konunni, dætrunum, vinum og vandamönnum. Ég vil rogast með hvern innkaupapokann á eftir öðrum út úr matvöruversluninni, með hangikjöt og hamborgarhrygg. Ég vil kaupa stóru úthafsrækjurnar af samstarfskonu minni, því þær verða girnilegur forréttur. Ég vil hafa uppi á honum Ævari og kanna hvort hann fer til rjúpna, svo veislumaturinn á aðfangadagskvöld verði eins og hann hefur alltaf verið, allt frá því að pabbi minn fór á fjöll með haglabyssuna sína. Ég vil norpa í kuldanum við jólatréssöluna, mæla og spá þar til ég hef fundið fallegasta tréð í stofuna heima. Ég vil sitja fram á nótt, skoða jólakortin sem ég fékk í fyrra og skrifa ný til fólks um allan heim, sem ég sinni því miður ekki sem skyldi aðra mánuði ársins. Ég vil koma heim úr vinnunni og sjá lítinn bunka af jólakortum á mottunni undir póstlúgunni. Ég vil fara í ÁTVR og kaupa gott púrtvín til að sötra með köldum gestum sem kíkja í aðventuheimsókn. Ég vil skúra allt og skrúbba, svo heimilið verði glansandi fínt um jólin. Ég vil eyða einum degi í piparkökubakstur með Kötu og stelpunum. Ég vil líka baka smákökur eins og mamma mín bakaði alltaf. Ég vil kaupa fínasta pappír og kort til að jólapakkarnir verði glaðlegir og fallegir.
Og þessa aðventuna vil ég líka fara til Kaupmannahafnar og eiga náðuga stund í julefrokost með Kötu á Det Lille Apotek.
Auðvitað sýnir flest í þessari upptalningu botnlausa neysluhyggju, ef fólk kýs að líta svo á. Kona, sem búsett er í útlöndum og hefur sjálf yfirdrifið að bíta og brenna, sagði eitt sinn við mig að hún væri fegin að vera ekki hér á landi í desember, því hérna væri svo brjálað stress. Hún treysti sér bara ekki til að horfa upp á þetta innkaupabrjálæði, þar sem fólk stundaði hamslausa eyðslu í tilefni jólanna.
Við þessu á ég bara eitt svar: Ég kýs að eyða mínum eigin peningum, sem ég hef aflað á heiðarlegan hátt, í mína þágu og fjölskyldu minnar á jólunum. Mér er gjörsamlega fyrirmunað að skilja, hvers vegna annað fólk hefur svo þungar áhyggjur af innkaupum mínum í desember. Sjaldnast gerir þetta sama fólk athugasemdir þegar ég kaupi mér flík, eða þegar fjölskyldan fer í sumarfrí. Af hverju í ósköpunum er þá opið veiðileyfi á mig og aðra neytendur í desember? Er kannski skemmtilegra að varpa skugga á jólagleðina en venjulega, hégómlega gleði yfir einhverju öðru? Og hvers vegna þarf ég að sitja undir því að þessi "eyðsla" mín í desember varpi á einhvern hátt skugga á tilefni sjálfra jólanna? Fær það staðist að innkaupaferðirnar mínar rýri gildi trúarinnar, dragi úr mikilvægi aðfangadags og jóladags? Er ekki hægt að gera sér dagamun, en minnast þess samt af hverju við höldum jól?
Ég þarf vonandi ekki að taka það sérstaklega fram, en geri það nú samt, að ég tala ekki fyrir hönd þeirra sem eiga á einhvern hátt um sárt að binda eða geta ekki notið jólanna sem skyldi, hvort sem það er vegna veikinda, fátæktar eða af öðrum ástæðum. Sá hópur er heldur ekki sá sem hæst hefur í desembermánuði um "kaupmannajól" og "neyslubrjálæði". Og auðvitað eru fjölmargir sem láta eitthvað af hendi rakna í desember til þeirra sem standa verr að vígi. Og gera það ekki síst af því að það er sjálfur jólamánuðurinn.
Ég ætti nú ekki að eyða öllu púðrinu í að býsnast yfir þessu tuði margra um eyðslu og neyslukapphlaup fyrir jólin. Líklega ætti ég að spara eitthvað fyrir nýárið. Því þá eru Íslendingar víst svo ægilega vitlausir að þeir eyða milljónum á milljónir ofan í alls konar flugelda og blys. Og kaupa enn á ný veislumat. Ég geri það svo sannarlega og læt fara alveg ægilega í taugarnar á mér alla þá sem segja, drjúgir á svip, að þeir ætli nú bara að fylgjast með nágrönnunum brenna peningunum sínum. Ekki yrði nú ljósadýrðin mikil ef allir hugsuðu svona.
Ég harðneita því að ég sé í einhverju kapphlaupi við Mammon í desember. Hins vegar sakar dálítið skemmtiskokk með honum ekki nokkurn mann. Þvert á móti, í desember lífgar það skokk upp á sál og líkama og fátt fær slegið á gleði mína. Nema fólkið sem sífellt sér sig knúið til að býsnast yfir hvernig aðrir kjósa að eyða eigin peningum.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Loksins einhver sem skilur mig. Jösses hvað mér léttir. Var farin að halda að það væri verulega mikið að mér og mínu fólki.
Takk fyrir mig.
Jenný Anna Baldursdóttir, 6.12.2007 kl. 09:54
Reyndar held ég að við séum í meirihluta, þetta fólk sem vill fá að hafa jólin sín eftir eigin höfði og tjalda öllu sem til er
Fýlupúkarnir eru bara alltaf svo fjári háværir !
Ragnhildur Sverrisdóttir, 6.12.2007 kl. 10:01
Sæl Ragnhildur. Takk fyrir pistilinn hann gladdi mig jafnmikið núna og þegar hann var birtur í Mogganum í fyrra. Mér finnst að hann eigi að vera skyldulesning fyrir hver jól! Bestu jólakveðjur.
Auður Ingólfs (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 12:42
Sæl og blessuð, Auður.
Hafðu engar áhyggjur, ég mun áreiðanlega endurvinna þennan pistil ofan í dygga lesendur bloggsins um ókomin ár
Gleðileg jól!
Ragnhildur Sverrisdóttir, 6.12.2007 kl. 13:36
Sæl Ragnhildur!
Loksins ætla ég að kvitta fyrir lesningu mína á blogginu þínu
Mér finnst þú svo rík! Svona yndislegar stelpur sem ég þreytist ekki á að lesa um og veltist oft um af hlátri yfir lesningunni. Svo ég minnist nú ekki á stafablöðin! Ég býð með eftirvæntingu eftir hverju blaði og blogginu um það
Hvað jólapistilinn þinn varðar þá varð ég ekki fyrir vonbrigðum með hann frekar en annað sem þú skrifar. Mikið svakalega er ég sammála þér! Ég er kennari. Í skólanum mínum skrifa eldri krakkarnir alltaf leikrit fyrir jólin og oftar en ekki snýst það um jólastress að einhverju leiti. Við vorum einmitt að ræða þetta á kennaraskrifstofunni. Alveg merkilegt... jólastress? Mér finnst einmitt að jólin eiga ekki að snúast um stress. Heldur að njóta þess að vera með fjölskyldunni, fá góða gesti í heimsókn og hápunktur aðventunnar hjá mér að þessu sinni var að baka piparkökuhús með stráknum mínum sem er 2 ára :)
Langaði bara að bæta aðeins í umræðuna og þakka þér fyrir góða og skemmtilega pistla
Aðventukveðja,
Ásta Hrönn , 6.12.2007 kl. 15:28
Þakka kærlega fyrir þessa þörfu lesningu, það er einmitt svona sem maður vill eyða desembermánuði og ég get bætt því við að hafandi búið í Danmörku, þar sem allt á sandsynligvis að ganga út á "hygge" í desember, þá er neyslukapphlaupið ekkert minna, jólagjafirnar ekkert minna yfirdrifnar, og merkjasnobbið síst minna. Danir eyða kannski minni tíma í bakstur og þrif en við en jólastress og neysluhyggja er sannarlega til þar líka. Og í þau skipti sem ég hef brugðið mér af landi brott í desember hef ég líka séð "innfædda" Skota, Breta og Bandaríkjamenn á kafi í jólastressi og hana nú! Og hana nú og hana nú!
Nanna Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 6.12.2007 kl. 16:12
heyr heyr!!!
Sigþóra Guðmundsdóttir, 6.12.2007 kl. 17:18
Takk fyrir kvitt, mér finnst svo gaman að fá viðbrögð frá skemmtilegu fólki.
Ég held að fólk sé almennt farið að nota orðið "stress" yfir það að hafa mikið að gera, eða þurfa að vinna mörg handtök. Í kvöld ætlum við Kata að setja jólatónlist á fóninn, skreyta krans sem við setjum á dyrnar og búa til jólapaté. Við munum örugglega bauka við þetta fram á nótt. Er það stress?? Aldeilis ekki! Það er töluverð vinna, en hvað með það? Ég get ekki ímyndað mér að bakstur á piparkökuhúsi með 2ja ára syni sé nokkurn tímann hægt að flokka undir stress, þótt móðirin hafi áreiðanlega þegið nokkrar aukahendur þann daginn.
Ég er fús til að fjölga handtökunum í desember, en harðneita að láta það heita jólastress.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 6.12.2007 kl. 21:04
Takk fyrir góðan pistil
Ása Hildur Guðjónsdóttir, 8.12.2007 kl. 00:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.