J er jafntefli í janúar

Síðasta stafablað haustsins í höfn!

Stafur vikunnar er J.

Margrét byrjaði á að spyrja mig hvernig jógúrt væri í laginu. Ég er loksins, loksins farin að læra að halda mig til hlés þegar þær brillera í stafablöðum, svo ég sagði henni að finna bara út úr því sjálf. Hún opnaði ísskápinn og rótaði þar fram og til baka, kom svo hróðug að borðinu aftur með dós af hreinni jógúrt. Hún var fljót að rissa hana upp, með lógói MS og öllu tilheyrandi. Jógúrt.

Næst spurði Margrét: "Hvernig veður er oft í janúar? Er heitt eða kalt?" Ég sagði henni að það væri kalt í janúar. "Er kalt með snjó og vindi og svoleiðis?" Ég staðfesti það og þá var hún snögg að teikna stór snjókorn að falla úr bláum himni. Neðst á myndinni var einhver þúst. Ég spurði hvað þetta væri. "Þetta er hús. Eða kannski bíll. Ég veit það ekki, það er ekki hægt að sjá það af því að það er svo mikill snjór á því." Janúar.

Þriðja myndin var einföld, bíllinn okkar rissaður upp og litaður svartur. Jeppi.

Loks dró Margrét upp hring, skellti inn á hann nokkrum grænleitum skellum og litaði blátt á milli þeirra. Jörð.

Elísabet vílaði ekki fyrir sér að teikna sjálf jólin á fyrstu mynd. Hún hefur reyndar gert það áður, að mig minnir á L-blaðinu, og þá voru jólin prúðbúin stelpa og veislumatur. Núna teiknaði hún hús, með ljósaseríu við alla glugga, í garðinum var skreytt jólatré og efst á myndinni marglit ljósasería. Jól.

Á mynd nr. 2 teygir skælbrosandi barn hendur sínar til mömmu. Tvö J í því: Jesús í jötu.

Á þriðju mynd sannaðist að jafnvel þótt stelpa sé orðin svo stór að hún er byrjuð í 1. bekk, búin að ná ágætum tökum á lestri, er dugleg að æfa skrift, gerir stórkostleg stafablöð og klæðist helst svörtu, en ekki því skærbleika sem eitt sinn var svo undurfagurt, þá eru blessaðar Disney-prinsessurnar ekki alveg horfnar henni úr huga. Jasmín.

Nú stóð Elísabet upp, gekk út að glugga og beið eftir hugljómun. Svo hrópaði hún yfir sig af kæti og fór að teikna af miklum móð. Og sór og sárt við lagði að það byrjaði sko á J. Hún teiknaði tvær mannverur með borð á milli sín og á borðinu er tafl. Orðið er jafntefli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Auðvitað er þúst ekki bara þúst......Litli Prinsinn teiknaði líka slöngu sem var búin að gleypa fíl, en fullorðna fólkið sá bara hatt!

Ásdís Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 7.12.2007 kl. 09:45

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Nei, þúst er sko ekki sama og þúst. Mér fannst hins vegar dálítið fyndið að listamaðurinn sjálfur hafði ekki hugmynd um hvað leyndist undir öllum snjónum. Litli prinsinn vissi þó hvert myndefni hans var  En Margréti hafði greinilega tekist svo vel upp að teikna mikla snjókomu að hún gat ekki einu sinni gert sér í hugarlund var leyndist í skaflinum.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.12.2007 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband