Örlítið áramótabókaflóð

Bókin mín næst ekki úr prentun fyrir helgi, því miður. Ég er auðvitað súr, en get hins vegar ekkert gert í málinu svo ég missi nú engan svefn yfir þessu. Í gær hringdi í mig maður og spurði hvort ég hefði ekki hugsað mér að gefa bókina út fyrir jól? Jú, vissulega var það ætlunin. Og er enn. Mig langar í jólabókaflóðið. Ég hef aldrei heyrt um áramótabókaflóð, en með þessu áframhaldi mun ég fljóta þar ein.

Dæs.... Stön og pust, eins og Andrés myndi segja.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Það er svo ergilegt þegar maður er tilbúinn með eitthvað sem á að nást í tæka tíð - en svo gengur það ekki af því einhver annar strandar einhverju einhversstaðar. Sérstaklega þegar maður bíður eftir bókinn i SINNI.

Hef lent í þessu. En ég er viss um að þessi bók er þess virði að beðið sé eftir henni Úr því sem komið er myndi hún bara drukkna í árans bókaflóðinu.

Sjáumst.

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 7.12.2007 kl. 14:42

2 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Breytum þessu bara og tölum um áramótaflóðið!!! Til er ég!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 7.12.2007 kl. 15:03

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk fyrir pep-talk! Ég er alls ekki búin að missa móðinn, bókin SKAL koma út á mánudaginn!! Og þá er nú enn hálfur mánuður til jóla..... OMG, bara HÁLFUR MÁNUÐUR. STÖÖÖÖÖN!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.12.2007 kl. 15:15

4 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Bók ,,,,,,,,,hvernig bók

Einar Bragi Bragason., 7.12.2007 kl. 15:38

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Bók um Pólstjörnumálið: Rannsókn fíknó í 10 mánuði, eltingaleikur við grunuðu út um alla Evrópu, siglingin hingað heim, með tilheyrandi stoppum og alls konar uppákomum. o.s.frv. Alvöru krimmi

Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.12.2007 kl. 15:54

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég er á bæn, eins og um var beðið, ef allt klikkar þá kaupi ég bókina í áramótagjöf.  Bók er bók, án tillits til útgáfudags (andsk.. trúi þessu ekki einu sinni sjálf).  Auðvitað kemur hún á mánudaginn. Pepp,pepp,pepp alveg endalaust og botnlaust.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.12.2007 kl. 17:08

7 Smámynd: Einar Bragi Bragason.

Pant kaupa eina

Einar Bragi Bragason., 8.12.2007 kl. 01:25

8 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk fyrir. öll sömul. Ég ætla ekki að missa móðinn

Ragnhildur Sverrisdóttir, 9.12.2007 kl. 00:37

9 identicon

Allt í góðu að gefa þessa bók út, en hafiði einhvertiman spáð í hvernig jólin verða fyrir aðstendendur þessara stráka?? Fjölskyldan veit alveg hvað þeir gerðu og að þetta sé rángt. En einhvernvegin eru jólin orðin nog of þúng fyrir, án þess að þessi bók mundi koma út. Vildi bara fá að benda ykkur á það.

Kv. Leið um jólin

Onafngreind (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 01:12

10 identicon

Sorry en mér finnst þetta bara illa gert að gefa út þessa bók þar sem ekki er búið að dæma í þessu máli og hvað með aðstanendur, ég þekki konu eins þeirra og hún er í rusli yfir þessu og þú vælir um eitthvað jólabókaflóð, er þetta peningagræðgi eða hvað ? Er ekki hægt að bíða með að gefa þessa fjandans bók út fyrr en að það sé búið að dæma í þessu máli æi finnst þetta bara illa gert og rangt, hvað varð um saklaus uns sekt er sönnuð?????

Guðrún (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 01:22

11 identicon

Ég verð nú að segja mitt mat á þessu máli. Að það eigi að gefa út bók um þetta mál svona stuttu eftir að það gerist finnst mér ekki rétt. Þessir drengir sitja en í gæsluvarðhaldi, þeir eiga allir fjölskyldur og sumir þeirra börn. Þetta er vissulega mjög erfitt og viðkvæmt fyrir aðstandendur og að það skuli koma út bók svona rétt fyrir jól, sem mun dæma þá fyrir alþjóð áður en búið er að dæma þá í dómstólum er furðulegt.

Mér finnst að þú kæri rithöfundur ættir að setja þig í spor aðsandanda í þessu máli.

Þú ert saklaus þanngað til sekt er sönnuð, dómur almennings er harðari en margir gera sér grein fyrir.

Aðstendur eru þeir sem þurfa að horfas í augu við almenning. Ég hefði haldið að það ætti að reyna að hlífa börnum og saklausum aðstandendum í svona málum.

Sigríður Lilja (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 01:32

12 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Vissulega á eftir að dæma í málinu, eins og kemur skýrt fram í bókinni. Þetta var hins vegar stærsta aðgerð fíkniefnalögreglunnar frá upphafi og mjög fréttnæm sem slík.

Frá því að málið kom upp hafa verið sagðar af því ýmsar fréttir og í bókinni minni geri ég hið sama; segi fréttir af rannsókninni, en bara miklu ítarlegri en áður hafa komið fram. Ég fjalla afar lítið um persónulega hagi þeirra manna, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi, og í sumum tilvikum alls ekkert. Í fjölmiðlum hafa t.d. komið fram miklu ítarlegri upplýsingar um fjölskyldumál a.m.k. sumra þeirra en koma fram í bókinni, enda legg ég enga áherslu á slíkt. Megináherslan er á gríðarlega umfangsmikla rannsókn lögreglunnar. Ég reyni að varpa ljósi á vinnubrögð hennar, um leið og ég fjalla um innflutning, dreifingu og sölu á fíkniefnum hér á landi.

Ég sé engan grundvallarmun á almennum fréttaflutningi af þessu máli annars vegar og bókinni minni hins vegar, fyrir utan að bókin mín rekur rannsókn málsins í miklu meiri smáatriðum en hingað til hafa komið fram. Ég hef aldrei heyrt fólk setja fram þá kröfu í fúlustu alvöru að ekki séu sagðar fréttir af mjög stórum lögreglumálum, fyrr en endanlegur dómur er fallinn í þeim.

Ég get vel ímyndað mér að fjölskyldur þeirra manna, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins, eigi erfitt þessa dagana. Það getur ekki verið auðvelt að horfast í augu við að ástvinur tengist umfangsmiklu -og þar með fréttnæmu- sakamáli. 

Ragnhildur Sverrisdóttir, 9.12.2007 kl. 22:29

13 identicon

Sorry en nú verð ég bara að segja það að ég óska þess að bókin þín komi út sem fyrst:) Þessir drengir hefðu betur spáð í hvað þeir væru að gera fjöldskyldum sínum áður en þeir flæktu sér á kaf í dóp, hvernig er hægt að vorkenna mönnum sem selja eiturlyf? það get ég aldrei skilið, en allavega áfram Ragnhildur:)

Rannveig Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 9.12.2007 kl. 23:51

14 identicon

Já svona er lika hægt að lita á þetta mál. En ég held að þið getið ekki einusinni ímyndað ykkur hvernig þetta er fyrir ástvini þessara stráka. Og ég veit fyrir víst að þeir eru ekki vondir menn og elska fjölskyldurnar sínar meira en allt. Fólk tekur stundum bara rangar leiðir í lifinu, en það samt ekki  að dæma aðra. Og séstaglega ekki ef maður hefur ekki hugmynd um hvað, hvernig og afhverju??? Þessi bók er bara (vonandi) lögregluransokn en gerir það samt að verkum að jólin hjá okkur er algjörlega onyt. Það var nú þegar orðið frekar þungt hérna á þessu heimili, svo þegar bókin kemur þá skanar þetta nú litið. 

Vildi bara að þú mundu kannski aðeins spá í hvernig þetta verður fyrir okkur, ekki bara spá í þínu jólabókaflóði... Og kannski þú gætir notað smá af bókagróðan í að kaupa kerti og kveikja eitt ljós fyrir okkur um jólin. Því við erum saklaus í þessu máli, enn einn þeirra sem situr í gæsluvarðhaldi útaf þessu máli er mjög heitt elskaður á þessu heimili. Hann er okkur allt, og við munum sakna hans mjög mikið um jólin.

Kv. frá okkur 

onafngreind (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 00:37

15 identicon

Svo er heldur ekki verið að biðja neinn um að vorkenna þá! þeir mundi nú bara aldrei láta vorkenna sér það get ég lofað ykkur....

Onafngreind (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 00:40

16 identicon

Þú ert nú bara að mála þig út í horn að fara að skrifa um eitthvað sem þú veist ekkert um nema það sem þú lest í blöðunum. Finnst hæpið að þú vitir meira en ég og aðrir íslendingar nema þú sért að sleikja rassa innann löggunar. Hugsaðu um þá sem erfiði hafa vegna þessa máls og þá er þetta ekki á það bædandi. Hugsaðu þig tvisvar um næst

Reynir (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 00:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband