9.12.2007 | 00:54
Fyrirsætur
Nú eru mæðgur farnar að skreyta ótæpilega innan dyra. Systur ráku upp hvert hamingjuýlfrið á eftir öðru þegar þær sáu spiladósina, óróann, litlu jólasveinana, hvítu englana og allt hitt jóladótið, sem kom upp úr kössunum úr bílskúrnum. Háttatíminn dróst aðeins, en það skiptir auðvitað engu máli á laugardegi í aðventu.
Hamingja þeirra var ekki eingöngu bundin við jólaskraut þessa helgi. Þær gistu hjá guðmæðrunum Addý og Báru aðfaranótt laugardags og þar á bæ er dekrað við þær í hið óendanlega. Þær byrjuðu reyndar á að fara í stúdíóið til Báru á föstudagseftirmiðdag og Bára tók yndislegar myndir af þeim. Systur eru auðvitað ekkert feimnar, gera allt sem þeim dettur í hug, dansa, syngja, gretta sig og sýna skörð, klifra hvor á annarri, stilla sér upp með gítara (sem var reyndar dálítið snúið því Margrét er svo nákvæm að það sást varla framan í hana, hún var alltaf að bogra og kanna hvort gripin væru ekki rétt, á meðan systir hennar var með pósurnar á tæru, en gripin ekki...). Við fengum að sjá þessar myndir í dag og á sumum sjást systur bara hálfar, fjörið var svo mikið að þær voru sífellt að hverfa út úr ramma
Þær fengu pizzu- veislu heima hjá Addý og Báru og héldu svo "litlu jólin" við arineld. Kvöldið varð samt fjörugt, því þær fengu guðmæðurnar til að draga fram dýnu svo þær gætu sýnt handahlaup á stofugólfinu.
Í morgun var haldið áfram að dekra við þær og kokkaður uppáhalds morgunmaturinn, egg og beikon.
Á meðan á öllu þessu stóð voru mömmur í frábærri afmælisveislu hjá Örnu vinkonu. Hún hélt stórpartý í veiðihúsinu við Laxá í Kjós, bauð í mat, svo var dansað fram á nótt, allir gistu á staðnum og hittust svo mishressir við morgunverðarborðið í morgun. Elísabet hringdi í miðri máltíð, mjög óðamála vegna lítils kettlings, sem heldur til úti á Granda, nálægt stúdíóinu hennar Báru. Hún var með alls konar kenningar um hvað hefði orðið um mömmuna, hvort kettlingurinn, sem systur kalla Kela af því að hann er svo kelinn, ætti einhver systkini og þar fram eftir götunum. Systir hennar kom líka í símann og endurtók hvert orð.
Í dag, eftir að við höfðum sótt þær til Addýar og Báru urðum við að aka út á Granda og kíkja eftir kettlingnum. Systur vildu ekki koma tómhentar, svo þær fóru hvor með sína dósina af kattamat. Keli var á staðnum og tók þeim fagnandi. Hann virðist nú ágætlega haldinn, þrátt fyrir útiveruna, en þær hafa gríðarlegar áhyggjur af honum og vilja helst heimsækja hann aftur á morgun. Ég held að við ætlum nú ekki að fara að fóðra blessaðan köttinn daglega, hann á líka góða að í húsunum í kring.
Margrét missti enn eina tönnina í kvöld, númer tvö í neðri góm. Hún var alveg jafn montin og í fyrri skipti, en Elísabetu þótti þetta ósanngjarnt, því hennar lausa tönn á enn dálítið í að detta alveg. "Mér finnst að tvíburar eigi alltaf að missa tennur á sama tíma," sagði hún.
Á morgun tekur við meira jólastúss. Ég ætla að reyna að finna úr út hvernig jólasveinninn prílar upp og niður upplýstu snúruna á meðan Kata gengur frá kransinum á útidyrnar. Systur ætla með Möggu frænku í Árbæjarsafnið og svo hittum við góða vini í matarveislu. Endalausar veislur og enn rúmur hálfur mánuður til jóla
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.