12.12.2007 | 11:25
Stekkjarstaur
Í gær spurði Margrét hvort hún mætti fara að sofa klukkan sjö, hún vildi að nóttin liði hratt af því að fyrsti jólasveinninn var að koma í heimsókn. Hún sofnaði þó aðeins síðar, enda fórum við í heita pottinn, svo í sturtu og loks varð að taka tillit til þess að nýtt Andrés-blað barst í gær. Á slíkum dögum er ekki hægt að fara að sofa fyrr en a.m.k. fyrsta sagan hefur verið lesin.
Þær systur tóku til smákökur, mandarínu og mjólkurglas fyrir sveinka og komu fyrir við arininn. Í morgun kom í ljós að hann hafði tekið hraustlega til matar síns og klárað allt saman. Stekkjarstaur reyndist ganga betur um en sumir bræðra hans gerðu í fyrra, en þá var stundum mylsna um öll gólf og einn þeirra hellti meira að segja niður mjólkinni! Núna var allt í sóma, mjólkurglasið tómt, kökurnar horfnar og börkurinn af mandarínunni á diskinum, fyrir utan dálítinn hluta hans, sem lá inni í arninum. Hann er nú einu sinni jólasveinn, alinn upp af Grýlu, og ekki hægt að ætlast til að hann geri þetta óaðfinnanlega.
Systur voru lukkulegar með tvær þrautabækur, sem þær fengu í skóinn, og ætla að byrja á þeim seinna í dag.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er nú svo skemtilegur tími, þegar við fórum í morgunn
að sækja ljósálfinn minn og aka henni í skólan, geri það 2. sinnum
í viku þá daga sem ég fer í sjúkraþjálfun,
kom þá ekki þessi litla hún er 3.ára út í dyr og veifaði bók
sem hún hafði fengið í skóinn.
Þau eru svo glöð þessar elskur.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.12.2007 kl. 13:29
Þetta er ótrúlega krúttlegur tími.
Eini gallinn er, að stelpurnar eru ansi myrkfælnar þessa dagana. Þeim finnst bara alls ekki kósý að ímynda sér einhverja karla á vappi við gluggana, eða niður um arininn, á nóttunni
Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.12.2007 kl. 15:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.